Fréttablað Eflingar 6. tbl. 2018

20 F R É T TA B L AÐ E F L I N G A R - S T É T TA R F É L AG S Fólkið í Eflingu Sögur fólksins í Eflingu Efling hefur komið upp nýrri vefsíðu undir yfirskriftinni Fólkið í Eflingu. Þar er að finna tugi stuttra frásagna félagsmanna. Sögur fólksins í Eflingu hafa vakið mikla athygli og eiga sinn þátt í að efla vitund félagsmanna og styðja sókn til bættra kjara og aukins réttlæt- is í samfélaginu. Í Eflingu eru tuttugu og sjö þúsund félagar sem vinna mikilvæg störf í íslensku samfé- Ég hef meðal annars starfað sem sjómaður, ráðsmaður og stjórnað lyftara á Eyrinni. Eftir að sjö tonna lyftari keyrði yfir mig var ég frá vinnu í fimm ár. Mér leiddist að gera ekki neitt og sótti loksins um vinnu á bensínstöð. Ég hef unnið hérna á stöðinni á Bíldshöfða í þrjú og hálft ár, var færður til af annarri bens- ínstöð þar sem ég byrjaði. Fyrst var ég í vakta- vinnu en svo var því breytt í dagvinnu. Ég kalla fólkið sem vinnur hérna frændur mína og frænkur, þetta er yndislegt fólk, mjög gott og skemmtilegt. Starfið er lifandi og það er gott að þjóna fólki og hjálpa því. Ég þekki mína fastakúnna sem koma hingað að fá bensín og þeir þekkja mig. Það er mjög frískandi að vinna úti, hressandi og ekki stressandi. Ef það er of mikið að gera þá kalla ég á frændur mína og frænkur og þau koma hlaupandi og hjálpa mér. Erum við ekki öll frændur og frænkur? Kaupið er sæmilegt en það mætti vera betra. Ég og konan mín eigum íbúð saman en ég neita mér um bíl. Það er svo mikill lúxus að eiga bíl. Það kemur fyrir að ég leigi bíl ef svo ber undir. Aðeins 18 ára var ég kominn til Danmerkur. Ég vann þar í fiski til að byrja með og síðan vann ég við að afferma skip. Það var svo mikil samstaða meðal verkafólksins í Danmörku. Þegar við réðum okkur í hafnarvinnu þar niður frá, ég og kunningi minn, vorum við hvorugur í verkalýðsfélagi. Þegar það komst upp þá lagði fólkið niður vinnu og fór í verkfall og krafðist þess að fá að vera í verkalýðsfélagi, annars myndum við láta okkur hverfa Ég skráði mig í Special Arbejderforbundet en kunninginn hætti við og lét sig hverfa. Ari Bragason er útimaður á bensinstöð á Bíldshöfða og félagi í Eflingu. Ari Bragason Ljósm. Alda Lóa Leifsdóttir lagi, oft á lágum launum. Störf félaganna eru fjölbreytt og ólík, þeir starfa í fyrirtækjum og verksmiðjum sem væru varla starfandi ef ekki væri vegna fólksins í Eflingu. Fólkið í Eflingu stendur við vélarnar, þjónar, skúrar, bónar og annast börnin, sjúka og aldraða. Alda Lóa Leifsdóttir, blaðamaður, hefur haft veg og vanda af því að safna saman sögum fólksins í Eflingu. Í blaðinu eru nokkur sýnishorn af þessum sögum. Þær gefa okkur hugmynd um líf þess og aðstæður. Félagsmenn eru hvattir til þess að skoða fleiri sögur á folkid.efling.is og dreifa þeim sem víðast, t.d. á samfélagsmiðlum.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==