September 2019 5. tölublað 24. árgangur

35 F R É T TA B L AÐ E F L I N G A R - S T É T TA R F É L AG S Réttindi launafólks Þessi atriði gilda um starfsfólk fyrirtækja, til dæmis í byggingarvinnu, veitingahúsum, hótelum, framleiðslu eða akstri. Starfsmenn ríkis, sveitarfélaga og heilbrigðisstofnana vinna samkvæmt öðrum kjarasamningum. 1. Ef þú ert ekki með ráðningarsamning um vaktavinnu og ef þú hefur ekki samþykkt vaktavinnu, þá áttu að fá greidda yfirvinnu, ekki álag, utan dagvinnutíma. 2. Þú átt rétt á að vinna alla vaktina þína. Ef þér er sagt að fara heim snemma, þá áttu samt að fá alla vaktina borgaða. 3. Starfshlutfallið þitt ætti að vera ein ákveðin tala, ekki bil á borð við 80–100%. 4. Það er þitt val hvort þú vinnir yfirvinnu, aldrei skylda. 5. Fyrir átta tíma vakt færðu 35 mínútna launað hlé. Almennt áttu að fá 5 mínútur af launuðu hléi fyrir hvern unninn klukkutíma. 6. Á hverjum degi áttu að fá minnst ellefu klukkutíma sam- fellda hvíld. Ef þessi hvíld fæst ekki, þá er það bætt upp með launuðu leyfi. 7. Minnst 10,17% eiga að vera greidd ofan á launin þín sem orlof. Það á að leggja orlofið inn á reikning á þínu nafni, þú átt peninginn. 8. Þú átt að fá orlofsuppbót í júní og desemberuppbót í des- ember ef þú vinnur þá, eða ef þú hefur unnið meira en 12 vikur undanfarið ár. 9. Allt starfsfólk hefur rétt til launaðra veikindadaga. Hjá sama atvinnurekanda ávinnur þú þér 2 daga á mánuði fyrsta árið, heilan mánuð eftir eitt ár. Rétturinn lengist eftir því sem þú vinnur lengur. Það er á ábyrgð yfirmanns að finna afleys- ingu fyrir veikan starfsmann. 10. Uppsögn á að vera skrifleg. Ef atvinnurekandinn vill að þú víkir strax frá störfum áttu rétt á að fá uppsagnarfrestinn borgaðan. Eftir að hafa unnið... ...er uppsagnarfresturinn þinn: ...minna en 2 vikur... enginn ...2 vikur... 12 dagar ...3 mánuði... 1 mánuður eftir næstu mánaðamót ...2 ár... 2 mánuðir eftir næstu mánaðamót ...3 ár... 3 mánuðir eftir næstu mánaðamót Ef þú nýtur ekki þessara réttinda á þínum vinnustað, eða þarft aðstoð við lestur launaseðla, þá geturðu komið á skrifstofu Eflingar og fengið astoð! Það hjálpar að koma með ráðningarsamning (ef þú ert með slíkan), nýlega launaseðla, vaktaplanið þitt og tímaskráningu yfir hvenær þú vannst hvern dag. Þjónusta Eflingar við félagsmenn er gjaldfrjáls og trúnaður ríkir um samskiptin. Frekari upplýsingar er að finna á www.efling.is • Ráðningarsamning ef þú ert með hann • Launaseðla frá síðustu mánuðum • Vaktaplanið þitt • Þína eigin tímaskýrslu yfir hvað þú vannst mikið hvern vinnudag (til dæmis kl. 8–16 þann 21. 07. 2019) Ef þú kemur skaltu taka með: á vinnustaðnum þínum sem þú hefur 10 réttindi

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==