Efling Ársskýrsla 2019

18 Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9 Alls náði Starfafl til þriðjungs félagsmanna sinna og þau fyrirtæki sem sóttu um styrki til Starfsafls voru 118 talsins. Fræðsla sem var styrkt á árinu var fjölbreytt og má þar nefna endurmenntun atvinnubílstjóra, meirapróf, tungumálanám, gæða- og öryggisstjórnun, stjórnenda- nám og fiskvinnsla, svo dæmi séu tekin. Fyrirtæki sem fengu Fræðslustjóra að láni voru 21 talsins en alls bárust 33 umsóknir. Að baki eru rúm- lega 1250 starfsmenn. Afraksturinn er fræðsluáætlun til allt að tveggja ára sem byggð er á ítarlegri þarfa- og hæfnigreiningu starfsfólks og stjórnenda samhliða stefnu fyrirtækis. Námskeið atvinnubílstjóra er annar stærsti liðurinn í styrkveitingum til fyrirtækja. Alls eru 88% styrkja til atvinnubílstjóra vegna lögbundinnar endurmenntun- ar, 10% vegna meiraprófa og aukinna ökuréttinda og 2% vegna ADR réttinda. Heildarfjárhæð þessara styrkja var rétt undir 15 milljónum króna. FÉLAGSLEG FRÆÐSLA Árið 2018 var lögð áhersla á margvísleg námskeið er snúa að samskiptum og sjálfsumhyggju auk skyndihjálpar og starfslokanámskeiða. Boðið var upp á námskeiðin: Verkstjórn á slysstað, Skyndihjálp, Starfslokanámskeið, Vaktavinna og vellíðan og Mitt allra besta . Sum námskeið voru einnig í boði á pólsku og/eða ensku. FRÆÐSLA UM VINNUMARKAÐINN Á starfsárinu var farið í heimsóknir í framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu. Í þessum heimsóknum er fjallað um vinnumarkaðinn, réttindi og skyldur þeirra sem eru í vinnu. Einnig fékk Efling í heimsókn nokkra hópa ungs fólks frá nokkrum fræðslu- og úrræðar aðilum. Hefðbundin fræðsla var einnig á ýmsum starfstengdum námskeiðum í samstarfi við símenntunarmiðstöðvar. SAMSTARF MÍMIS OG EFLINGAR Efling hefur átt gott samstarf við Mími líkt og undan- farin ár. Mímir hefur skipulagt og haldið utan um mörg þau námskeið sem Efling hefur boðið sínum félags- mönnum upp á. Félagsmenn Eflingar hafa auk starfsmenntanámskeiða sótt í náms- og starfsráðgjöf, námsleiðirnar Aftur í nám, Grunnmenntaskólann og Menntastoðir . Kesarin S. Daengardóttir, félagsmaður Eflingar við útskrift sína af fagnámskeiði í umönnun

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==