Efling Ársskýrsla 2019
20 Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9 NÝTT FÉLAGSSVIÐ EFLINGAR Félagssvið Eflingar hóf starfsemi á haustmánuðum 2018. Þar sem almenn félagsleg virkni hefur farið dvínandi í samfélaginu er það áskorun fyrir félagið að virkja félagsmenn sína þannig að starfsemi þess verði ekki eingöngu bundin við hefðbundna þjónustu. Það ásamt mikilli fjölgun félagsmanna, sér í lagi í geirum á borð við veitingarekstur og byggingarvinnu, skapar áskoranir við að afla nýrra trúnaðarmanna þar sem vinnustaðir í þessum starfsgreinum einkennast oft af mikilli starfsmannaveltu. Það er mikilvægt og tímabært verkefni að taka tillit til breyttrar samsetningar félagsmanna hvað varðar upp- runa og tungumál. Vinnustaðafundir geta ekki lengur eingöngu farið fram á íslensku og ekki er nóg að fræða félagsmenn af erlendum uppruna um réttindi þeirra heldur þarf einnig að efla þá til þátttöku og baráttu fyrir eigin hagsmunum. Til að takast á við þetta verk efni var stofnað nýtt svið haustið 2018, Félagssvið, FÉLAGSSVIÐ EFLINGAR Valgerður Árnadóttir, starfandi sviðsstjóri félagssviðs með það að markmiði að efla félagslega þátttöku, að fjölga trúnaðarmönnum og tryggja að þeir endurspegli félagsmannahópinn eins og best verður á kosið. Þær Valgerður Árnadóttir, Magdalena Samsonowicz og Alma Pálmadóttir tóku til starfa í september og í október bættist Maxim Baru við. Maxim Baru starfaði sem sviðsstjóri Félagssviðs fram í apríl 2019 en hann hefur víðtæka reynslu af starfsemi stéttarfélaga í Norður-Ameríku og aðra nálgun en áður hafði verið reynd hér á landi. Maxim hélt námskeið fyrir starfsfólk og félagsmenn til að kenna þeim að efla starfsfélaga sína og skipuleggja þá til að koma á samvinnuhópum innan vinnustaða sem í styrk fjöldans geta unnið saman að því að bæta starfsumhverfi, kaup og kjör. VIRKJUN FÉLAGSMANNA Starfsfólk félagssviðs sótti vinnustaðafundi til að eiga samtal við félagsmenn og út frá því geta mótað kröfu- gerð fyrir kjarasamningaviðræður og aðstoða starfsfólk við að skipuleggja samvinnuhópa innan vinnustaða sinna. Félagssvið gaf þeim verkfæri til að efla samstarf sitt og takast á við vandamál með því að fara í sam- eiginlegar aðgerðir. Jafnvel minni aðgerðir, eins og að skrifa bréf eða funda með yfirmanni geta leitt af sér breytingar fljótt og vel. Það kennir starfsfólki að það geti haft áhrif. TRÚNAÐARMENN MIKILVÆGIR Í STÉTTABARÁTTUNNI Trúnaðarmenn gegna mikilvægu hlutverki í kjarabar- áttunni, þeir eru rödd sinna samstarfsmanna, koma að kröfugerð og standa vörð um sína starfsgrein í samn- inganefndum. Segja má að slagorðið Ekkert um okkur án okkar! eigi vel við um verkalýðshreyfinguna og þess vegna er mikilvægt að hver einasti vinnustaður hafi öfl- uga talsmenn. Félagssvið fór strax af stað á vinnustaði og hvatti félagsmenn til að kjósa sér trúnaðarmenn sem helst endurspegluðu starfsmenn og næði til þeirra flestra. Það varð til þess að fjölmargir trúnaðarmenn af erlendum uppruna bættust í okkar góða hóp. Ný nálg- un Eflingar sem felst í að þýða allt efni á fleiri tungumál og styrkur Félagssviðs að hafa pólsku- og enskumæl- andi starfsfólk auðveldaði okkur að ná til fólks. Trúnaðarmenn Konur Karlar Íslenskir Erlendir Pólskir Aðrir Evrópu Aðrir 2018 264 153 111 201 63 35 20 8 2017 226 135 91 188 38 14 14 3 Fjölgun milli ára 38 18 20 13 25 21 6 5
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==