Efling Ársskýrsla 2019
21 Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9 STÖÐUGT SAMTAL Til að halda góðum samskiptum við vinnustaði og trún- aðarmenn stofnaði sviðið vinnustaðahópa og spjallhópa á samfélagsmiðlum. Það gefur félagsmönnum beina línu til félagsfulltrúa og eykur þekkingu félagsmanna á eigin réttindum, aðstoðar þá að takast á við vandamál sem upp koma og eflir samstöðu þeirra. Í framhaldinu var fundað reglulega með trúnaðarmannahópum, til dæmis úr hótelbransanum og frá bílstjórum. Það var af nógu að taka í þeim starfsgreinum en þar er fólk sem er að miklummeirihluta af erlendum uppruna og hefur upplifað það að á þeim sé brotið í mun meiri mæli en á íslenskum samtarfsfélögum þeirra. Það fannst að þeim vantaði það félagslega stuðningsnet sem hægt er að veita þeim og var þeim hjálpað til að skipuleggja sig og halda áfram að funda og vinna úr vandamálum án handleiðslu félagsins. En þó með þeirri vitund að félag- ið er til staðar þegar þau þurfa á að halda. KJARAVIÐRÆÐUR OG VERKFÖLL Góð samskipti við trúnaðarmenn sem miðluðu upplýs- ingum til sinna samstarfsfélaga bar árangur í kjaravið- ræðum, eins og þegar kom að kosningu um verkfalls- aðgerðir sem samþykktar voru með miklum meirihluta atkvæða. Starfsfólk Félagssviðs skipulagði og hafði utanumhald með ferðum kosningabíls Eflingar og verkfallsaðgerð- um í kjölfarið með dyggri aðstoð vettvangsfulltrúa úr röðum félagsmanna og stjórnar. Vettvangsfulltrúar aðstoðuðu við að fara á vinnustaði og afla tengiliða upplýsingum félagsmanna, að þýða efni á önnur tungu- mál, við starfsmannafundi og trúnaðarmannakosn- ingar og að manna kosningabíla og verkfallsvaktir. FRÆÐSLUFUNDIR OG KYNNINGARSTARF Félagssvið tók að sér mörg verkefni eins og að aðstoða við skipulag og kynningu á fræðslufundum í Gerðubergi alla laugardaga síðastliðið haust. Fundirnir voru vel sóttir af félagsmönnum ásamt því að vekja athygli fjölmiðla og samfélagsins alls, þeir vörpuðu ljósi á og opnuðu umræður um stéttaskiptingu, launaþjófn- að, tengihagkerfi og málefni öryrkja svo eitthvað sé nefnt. Félagssvið aðstoðaði einnig við að koma saman fjölbreyttum hópi félagsmanna í samninganefnd fyrir kjarasamningaviðræður og héldu námsskeið og fræðslufyrirlestra með gestafyrirlesurum erlendis frá til að efla fólk í baráttunni og læra af reynslu annarra. Stór hluti starfsins hefur einnig falist í því að þýða fræðslu- og kynningarefni Eflingar yfir á önnur tungumál. MARKMIÐ FÉLAGSSVIÐS Markmið Félagssviðs er að halda áfram því góða starfi sem það hefur hafið. Að efla félagsmenn til að hafa áhrif á ákvarðanatöku á eigin vinnustöðum og hjálpa þeim að takast á við vandamál er upp koma. Að hvetja félagsmenn til þátttöku í félagslegu starfi Eflingar, bæði innan og utan trúnaðarmannakerfisins og að fræða fólk um réttindi sín með sérstaka áherslu á fjölbreytileika, að ná til fólks af erlendum uppruna, úr öllum starfs- stéttum og af öllum kynjum. Síðast en ekki síst að halda áfram að efla samskipti, samstöðu og félagsleg tengsl við félagsmenn og þeirra á milli. Virk þátttaka sem flestra okkar á vettvangi félagsins er lykillinn að því að gera Eflingu að öflugum og einbeitt- um baráttusamtökum fyrir hagsmunum verkafólks. Verkfallsaðgerðir Eflingar á alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==