Efling Ársskýrsla 2019

22 Þó starfsárið sem er að líða hafi verið að mestu hefð- bundið hvað varðar rekstur orlofssjóðs er samt sem áður svo að vinna við undirbúning framkvæmda við byggingu 12 orlofshúsa Eflingar í Reykholti í Bláskógabyggð hefur verið langstærsti einstaki þáttur- inn í starfinu. Segja má með sanni að það verkefni hafi verið lengi á borði stjórnar orlofssjóðs og undirbún- ingur staðið ummargra ára skeið þó með hléum. Enda var það ávallt markmiðið að vanda sérlega vel til verka og gaumgæfa vel hvert skref sem tekið hefur verið á þeirri löngu leið. FJÁRMÁL OG AFKOMA Niðurstaða rekstrar hjá orlofssjóði verður að teljast afar góð á árinu 2018. Þrátt fyrir öflugar framkvæmdir og áframhaldandi uppbyggingu húsa er niðurstaða rekstrar rúmar 195 milljónir í afgang sem er einmitt í fullu samræmi við það markmið að undirbúa upp- bygginguna í Reykholti. Á undanförnum árum hefur verið unnið markvisst að því að losa út úr eignasafni sjóðsins gömul hús sem voru orðin mjög viðhaldsfrek og byggja í þeirra stað ný hús sem falla betur að kröfum félagsmanna og eru þar að auki viðhaldslétt til margra ára. Það var alltaf full trú á því að slíkt myndi að lokum skila góðum árangri og vera hagstætt í fjárhagslegu tilliti. Er það afar ánægjuleg niðurstaða að sjá það ganga svo vel eftir. Athyglisvert er að bæði iðgjaldatekjur orlofssjóðs svo og leigutekjur húsanna hækka milli ára um 10% og það þrátt fyrir að ekki hafi verið um verðhækkanir á þjónustu sjóðsins að ræða og segir það okkur að nýting húsanna er enn að aukast og er það vel. Rekstur húsanna hækkar aðeins um 4% þrátt fyrir að hvergi hafi verið slegið af varðandi endurnýjun og viðhald heldur er allt utanumhald markvisst og tekist hefur að lækka rekstur hlutfallslega með nýrri og betri húsum. Þá má benda á að orlofssjóður er skuldlaus og staða hans afar sterk, eignir hafa vaxið hratt á síðustu árum og ekkert að vanbúnaði að takast á við þau næstu skref sem eru framundan í uppbyggingunni. ÞJÓNUSTA OG FRAMBOÐ Orlofshús í eigu félagsins í dag eru nú 50 talsins auk þriggja íbúða sem orlofssjóður hefur í langtímaleigu fyrir félagsmenn, einnig eru nokkur hús leigð yfir sumartímann meðan mesta eftirspurnin er og svo er skipt á húsum við önnur félög til að auka fjölbreytnina. Öll húsin eru heilsárshús í leigu jafnt sumar sem vetur utan tveggja húsa í orlofsbyggðinni í Flókalundi sem eru aðeins í notkun á sumrin. Alls voru gefnir út um það bil 2545 leigusamningar á árinu 2018, sumarleigusamningar 766 og 1779 vetrar- leigusamningar. Umsóknir fyrir sumarleigu voru um 550 og fengu flestir umsækjendur einhverja úrlausn. Orlofssjóður hefur boðið Útilegu- og Veiðikortið til sölu undanfarin ár og hafa þau notið mikilla vinsælda enda á mjög góðu verði til félagsmanna. Þannig seldust 588 slík kort á síðasta ári. Spalarmiðar voru einnig til sölu framan af ári en sjálf- hætt þegar gjaldtaka var aflögð í Hvalfjarðargöngin. Einnig hafa verið til sölu gjafabréf Icelandair og Úrval Útsýnar og eru þau afar eftirsótt enda hagstæð þeim sem geta nýtt sér þau. Um 460 seldust af þeim en auk þessa voru einnig í boði niðurgreiðslur á gistingu hjá innlendum ferðaþjónustuaðilum Þegar allt er saman tekið má hiklaust segja að umsvifin hjá orlofssjóði séu mikil og félagsmenn sem leita til sjóðsins til að afla sér upplýsinga eða njóti þjónustu hans skipti þúsundum. FRAMKVÆMDIR Stöðugt er unnið að endurbótum og lagfæringum hús- anna og var engin undantekning á því á þessu starfsári. Það sem helst ber að nefna er að byggt var við þrjú ORLOFS- OG FERÐAMÁL Sveinn Ingvason, sviðsstjóri orlofssviðs Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==