Efling Ársskýrsla 2019

25 Hér á eftir er tiplað á helstu kennitölum í rekstrar­ reikningi Eflingar stéttarfélags fyrir árið 2018, efna- hagsreikningi 31.12.2018 og sjóðstreymi ársins 2018. Ársreikningur Eflingar samanstendur af samstæðu­ reikningi átta sjóða Eflingar en þeir eru: Félagssjóður, Vinnudeilusjóður, Fræðslusjóður, Sjúkrasjóður, Fjölskyldu- og styrktarsjóður, Styrktarsjóður, Endurhæfingarsjóður og Orlofssjóður. Samstæðu­ reikningurinn er fremst í ársreikningnum en yfirlit sjóðanna átta eru í töflum aftar í reikningnum. REKSTUR OG AFKOMA Afkoma ársins 2018 var á heildina litið mjög góð. Iðgjaldatekjur hækkuðu milli ára um 10,4% og námu 2,4 milljörðum króna. Hækkunin skýrist aðallega af fjölgun félagsmanna og umsömdum launahækkunum. Útgjöld hækka einnig milli ára eða um 24% og munar þar mest um hækkun á útgreiddum bótum og styrkj- um um rúmar 200 milljónir króna. Tekjur umfram gjöld fyrir fjármagnsliði nema 348 milljónum saman- borið við 525 milljónir árið á undan. Fjármagnsliðir ársins voru 505 milljónir árið 2018 samanborið við tæpar 521 milljónir árið á undan. Afkoma ársins nam um 853 milljónum króna samanborið við 1.046 millj- ónir árið á undan. Nafnávöxtun eigin fjár var 5,4% á árinu 2018 og hrein raunávöxtun ársins 2,1%. EIGIÐ FÉ Eiginfjárstaða Eflingar er sterk, eignir félagsins eru að mestu leyti bundnar í traustum skuldabréfum, bundn- um bankainnstæðum, orlofshúsum, fasteignum og lóðum. Heildareignir félagsins er rúmir 13 milljarðar króna. Skuldir nema 277 milljónum króna og er eigið fé félagsins því rúmir 12,7 milljarðar króna í árslok. FÉLAGSMENN Greiðandi félagsmenn á árinu 2018 voru 43.137 eða 1.764 fleiri en árið 2017. Af þessum voru 24.080 karl- ar og 19.057 konur. Þar sem sumir greiða einungis hluta úr ári reiknast meðalfjöldi þeirra sem greiddu til Eflingar á árinu 28.140. LAUNAGREIÐENDUR Fjöldi launagreiðenda sem greiða í félagið fyrir starfs- menn sína heldur áfram að fjölga milli ára og voru þeir samtals 3.427 á árinu 2018 samanborið við 3.247 árið 2017. Árið 2016 greiddu 2.966 launagreiðendur til félagsins. FÉLAGSSJÓÐUR Iðgjöld Félagssjóðs eru 0,7% af öllum launum. Af þeim iðgjöldum renna 15% í Vinnudeilusjóð og 6% í Fræðslusjóð. Eigið fé Félagssjóðs nam tæpum 2,3 milljörðum króna í árslok 2018 og jókst um 6,4% frá upphafi ársins. VINNUDEILUSJÓÐUR Í Vinnudeilusjóð renna 15% af iðgjöldum Félagssjóðs og má því segja að 0,1% af öllum launum renni í hann. Eigið fé Vinnudeilusjóðs nam tæpum 2,8 milljörðum króna í árslok 2018 og jókst um 8,2% frá upphafi ársins. FRÆÐSLUSJÓÐUR Í Fræðslusjóð renna 6% af innheimtum iðgjöldum Félagssjóðs og má því segja að 0,04% af öllum launum renni í hann. Eigið fé Fræðslusjóðs nam tæpum 207 milljónum króna í árslok 2018 og hafði aukist um 14% frá upphafi ársins. SJÚKRASJÓÐUR Umsamin iðgjöld í Sjúkrasjóð eru 1% framlag launa- greiðenda. Hlutfall bóta af iðgjaldatekjum var 89% árið 2018 og jókst þetta hlutfall umtalsvert frá fyrra ári þegar það var tæp 75%, en þetta hlutfall var 80% árið 2016. Eigið fé Sjúkrasjóðs nam 5,2 milljörðum í árslok 2018 og hafði aukist um tæp 5,1% frá upphafi ársins. FJÁRHAGUR EFLINGAR 2018 Óskar Örn Ágústsson, starfandi fjármálastjóri Eflingar Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==