Efling Ársskýrsla 2019

29 • Ályktum um notkun stjórnenda á forsendunni um rekstrarhæfi og metum á grundvelli endurskoðunarinnar hvort veru- legur vafi leiki á rekstrarhæfi eða hvort aðstæður séu til staðar sem gætu valdið verulegum efasemdum um rekstr- arhæfi. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum samstæðuársreikningsins í áritun okkar. Ef slíkar skýringar eru ófullnægjandi þurfum við að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Engu að síður geta atburðir eða aðstæður í framtíðinni valdið óvissu um rekstrarhæfi félagsins. • Metum í heild sinni hvort samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum, metum framsetningu, uppbyggingu, innihald og þar með talið skýringar við samstæðuársreikninginn með tilliti til glöggrar myndar. Okkur ber skylda til að upplýsa stjórn meðal annars um áætlað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem komu upp í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirlit sem komu fram í endurskoðun- inni, ef við á. Kópavogur, 17. apríl 2019 Deloitte ehf. Benóní Torfi Eggertsson endurskoðandi Áritun skoðunarmanna Við undirritaðir félagslega kjörnir skoðunarmenn höfum yfirfarið þennan samstæðuársreikning og með tilvísun til áritunar endurskoðanda félagsins leggjum við til að hann verði samþykktur. Reykjavík, 17. apríl 2019 Anna Edvardsdóttir Vairis Klavins félagskjörinn skoðunarmaður félagskjörinn skoðunarmaður Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==