Efling Ársskýrsla 2019
30 SKÝRSLA STJÓRNAR Samstæðuársreikningur Eflingar stéttarfélags fyrir árið 2018 er gerður í samræmi við lög um ársreikninga að undanskildum kröfum um framsetningu bundinna eiginfjárreikninga þar sem um félagasamtök er að ræða. Tekjur umfram gjöld á árinu 2018 nema kr. 852.688.465. Samkvæmt efnahagsreikningi nema eignir félagsins kr. 13.001.598.316, bókfært eigið fé í árslok er kr. 12.724.345.643 og er eiginfjárhlutfall félagsins 97,87%. Stjórn félagsins vísar í samstæðuársreikninginn um breytingar á eigin fé félagsins og ráðstöfun ársins. Megin hlutverk Eflingar-stéttarfélags er að vinna að gerð kjarasamninga, túlka þá félagsmönnum í hag, byggja upp réttindi í sjóðum fyrir félagsmenn og verja réttindi þeirra í kjarasamningum og vinnudeilum, gagnvart slysa- og veikindarétti, orlofsmálum og í fræðslumálum. Efling-stéttarfélag veitir félagsmönnum sínum fjölþætta þjónustu á þessum sviðum. Það er álit stjórnar Eflingar stéttarfélags að í samstæðuársreikningi þessum komi fram allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að glöggva sig á stöðu félagsins í árslok, rekstrarárangri ársins og fjárhagslegri þróun á árinu. Stjórn Eflingar stéttar- félags staðfestir hér með samstæðuársreikning félagsins fyrir árið 2018 með undirritun sinni. Reykjavík, 11. apríl 2019 Í STJÓRN Sólveig Anna Jónsdóttir stjórnarformaður Sigurrós Kristinsdóttir Fanney Friðriksdóttir Magdalena Kwiatkowska Aðalgeir Björnsson Anna Marta Marjankowska, Daníel Örn Arnarsson Guðmundur Jónatan Baldursson, Guðný Óskarsdóttir Hjördís Kristjánsdóttir Jamie Mcquilkin Jóhann Harðarson Kolbrún Valvesdóttir Steinþór Ingi Þórsson Þorsteinn M. Kristjánsson Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==