Efling Ársskýrsla 2019

46 Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9 GILDI–LÍFEYRISSJÓÐUR STARFSEMIN Á ÁRINU 2018 Óvissa og sveiflur á mörkuðum einkenndu árið 2018 og hafði það áhrif á afkomu Gildis. Talsverðar sveifl- ur urðu á gengi gjaldmiðla og virði innlendra og erlendra hlutabréfa lækkaði. Verðbólga jókst þegar líða fór á árið en engu að síður má segja að ávöxtun samtryggingardeildar sjóðsins og fjárfestingaleiða sér- eignardeilda hafi verið ásættanleg á árinu 2018. Gildi-lífeyrissjóður skiptist í þrjár deildir; sam- tryggingardeild, séreignardeild og tilgreinda séreignar- deild. Hrein eign samtryggingardeildar til greiðslu líf- eyris nam 556.3 milljörðum kr. í árslok 2018 og hækk- aði á árinu um 43.5 milljarða. Hrein eign séreignar- deildar nam 4.8 milljörðum í árslok 2018. Tilgreind séreignardeild var stofnuð 1. júlí 2017 og nam hrein eign hennar í lok ársins samtals 118 milljónum kr. Innan tilgreindrar séreignardeildar eru þrjár ávöxtun- arleiðir sem eru þær sömu og í séreignardeild sjóðsins. Rekstrarkostnaður sjóðsins á árinu 2018 nam samtals 873 milljónum kr. en var 806 milljónir á árinu 2017. IÐGJÖLD OG LÍFEYRISGREIÐSLUR Á árinu 2018 greiddu 6.090 launagreiðendur iðgjöld til sjóðsins fyrir 56.147 sjóðfélaga. Samtals iðgjalda- greiðslur námu 28.3 milljörðum kr. Sjóðfélagar með réttindi í samtryggingardeild voru 234.968 í árslok og rétthafar í séreignardeild sjóðsins 36.722. Þar af átti 571 sjóðfélagi rétt í tilgreindri séreign. Lífeyrisgreiðslur sjóðsins á árinu námu alls 16.3 millj- örðum kr., en voru 15.2 milljarðar árið 2017. Ellilífeyrir nam 10.3 milljörðum, örorkulífeyrir 4.9 milljörðum, makalífeyrir 923 milljónum kr. og barnalífeyrir 153 milljónum. Heildarfjöldi lífeyrisþega var 23.397. ÖRORKULÍFEYRIR Örorkulífeyrisgreiðslur eru sem fyrr hátt hlutfall lífeyr- isgreiðslna sjóðsins og með því hæsta sem þekkist hjá íslenskum lífeyrissjóðum. Til þess að jafna stöðu lífeyr- issjóða vegna mismunandi örorkubyrði hafa lífeyris- sjóðir fengið úthlutað framlagi frá ríkinu sem greiðist af tryggingagjaldi. Gildi hefur nýtt framlagið til þess að hækka réttindi lífeyrisþega og greiðandi sjóðfélaga. Það nam rúmlega 1,8 milljörðum kr. á árinu 2018 og voru réttindi hækkuð um 4% á grundvelli þeirra. TRYGGINGAFRÆÐILEG ÚTTEKT Tryggingafræðileg úttekt var gerð á stöðu sam- tryggingardeildar sjóðsins miðað við árslok 2018. Samkvæmt henni voru eignir sjóðsins 7.434 milljónum kr. lægri en áunnin réttindi sjóðfélaga. Þegar tekið er tillit til áætlaðra framtíðariðgjalda eru eignir sjóðsins 15.042 milljónum kr. lægri en heildarskuldbindingar í árslok. Heildarstaða sjóðsins er því neikvæð um 1,5% í árslok 2018 sem er sama staða og í árslok 2017. SJÓÐFÉLAGALÁN Mjög mikil aukning hefur orðið í útlánum til sjóðfélaga á síðustu árum og hélt sú þróun áfram á árinu 2018. Veitt voru 1.359 ný lán sem er aukning í fjölda um 54,8% á milli ára. Heildarfjárhæð nýrra lána nam 22 milljöðrum kr. og hækkaði um tæplega 9,2 milljarða króna frá fyrra ári. Í lok ársins var skilyrðum fyrir lánveitingum til sjóðfélaga breytt þegar hámarksveð- hlutfall var fært niður í 70% eftir að hafa verið 75% um nokkurra missera skeið. ERLENDAR FJÁRFESTINGAR Það er stefna Gildis og hluti af áhættustýringu sjóðsins að eiga vel dreift eignasafn sem ekki byggir eingöngu á íslenska hagkerfinu. Þann 14. mars 2017 aflétti Seðlabanki Íslands fjármagnshöftum af fjárfestingum lífeyrissjóða utan Íslands og hefur sjóðurinn frá þeim tíma smám saman aukið hlutfall erlendra eigna í eignasafni sínu. Sjóðurinn keypti erlend verðbréf fyrir 17 milljarða kr. umfram þau sem hann seldi á árinu 2018. Eignir sjóðsins í erlendri mynt námu 189 millj- örðum kr. í árslok. Á árinu jókst hlutfall eigna sjóðsins í erlendri mynt úr 32,8% í ársbyrjun í 34,6% í árslok 2018. Í fjárfestingarstefnu setur sjóðurinn sér mark- mið um hlutfall eigna í erlendum gjaldmiðli. Sjóðurinn hefur sett sér markmið um frekari fjárfestingu erlendis, með áherslu á að auka við fjölbreytni í eignadreifingu innan erlendra eignaflokka. Hrein Hrein nafnávöxtun raunávöxtun Samtryggingardeild 5,8% 2,4% Framtíðarsýn 1 4,0% 0,7% Framtíðarsýn 2 5,5% 2,2% Framtíðarsýn 3 5,2% 1,9% Hrein nafn- og raunávöxtun

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==