11
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Bókasafnið
Bókasafn Dagsbrúnar
í ReykjavíkurAkademíunni
Nýlega var undirritaður nýr samningur
við ReykjavíkurAkademíuna um varð
veislu Bókasafns Dagsbrúnar. Á næsta
ári 2013 verður áratugur síðan fyrsti
samningurinn var gerður við Reykjavík
urAkademíuna um varðveislu safnsins
og þakkaði Sigurður Bessason, formað
ur Eflingar sem undirritaði samninginn
fyrir hönd Eflingar forsvarsmönnum
Akademíunnar fyrir gott og farsælt
samstarf við Reykjavíkurakademíuna
í nærfellt áratug. Guðmundur Þ Jóns
son, fyrrum varaformaður Eflingar
hefur verið fulltrúi Eflingar í stjórn
Bókasafnsins. Samningurinn gildir nú
til 2015.
Bókasafn Dagsbrúnar er til húsa í gamla
JL húsinu við Hringbraut í Reykjavík en
þar eru um 18.000 bókabindi sem voru
áður í eigu Verkamannafélagsins Dags
brúnar en nú í eigu Eflingar og vörslu
ReykjavíkurAkademíunnar frá árinu
2003.
Í safninu er ýmsar gersemar frá fyrri
öldum en síðan einstakt safn bóka á
sviði verkalýðsmála, félags- og vinnu
mála.
Í safninu eru nú á áttunda þúsund
titlar skráðir í bókasafnskerfið Gegni
(
). Skráningu uppruna
lega safnkosts bókasafnsins er að
mestu leyti lokið. Þar er t.d. að finna
dagblöðin Alþýðublaðið og Þjóðvilj
ann, öll helstu íslensk fréttablöð og
tímarit frá ofanverðri 19. öld og fram
á 20. öld, Alþingis- og Stjórnartíðindi,
auk fjölda fréttabréfa, bæklinga og
smáprents frá verkalýðshreyfingu og
stjórnmálaflokkum.
Safnkostur
Nýr samningur um
Sigurrós Kristinsdóttir, varaformaður Eflingar, Anna Jensdóttir bókasafns- & upplýsingafræðingur, Guðný Kristín Bjarnadóttir, bókasafns- & upplýsingafræðingur - starfsmenn Bókasafns
Dagbrúnar, Davíð Ólafsson formaður stjórnar RA, Guðmundur Þ Jónsson í stjórn Bókasafnsins og Þráinn Hallgrímsson, skrifstofustjóri Eflingar. Þau fylgjast með Sigurði Bessasyni og
Sólveigu Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra ReykjavíkurAkademíunnar, undirrita samninginn.
Ian Watson hefur verið driffjöður safnsins síðustu árin. Hér handleikur hann nokkrar bækur safnsins en það hefur
nú allt verið skráð og er mjög aðgengilegt.