15
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Nám
og Mímir hafa unnið saman að í nokk-
urn tíma. Um er að ræða nám þar sem
blandað er saman hefðbundnu starfs-
námi og íslenskukennslu. Mjög góður
árangur hefur náðst í þessu námi og
það að kenna íslenskuna í tengslum við
starfsmenntun margfaldar árangurinn
að mati þeirra sem hafa komið að þessu
námi.
Trúnaðarmannanámið
er síðan fastur
liður hjá Eflingu og verður áfram boðið
upp á hefðbundin námskeið til þess að
efla og upplýsa trúnaðarmenn á vinnu-
markaði. Trúnaðarmenn eru okkur mjög
mikilvægir vegna þess að þeir eru okkar
tengiliðir út í atvinnulífið. Það verður að
segja trúnaðarmönnum Eflingar til hróss
að þeir eru duglegir að koma á námskeið
til okkar og eru þeir svo sannarlega fróð-
leiksþyrstur hópur, segir Sigurrós.
Að lokum langar mig að nefna nokkur
félagsleg námskeið sem við höldum sjálf
hér í húsnæði Eflingar en þessi nám-
skeið eru ætluð félagsmönnum til upp-
lyftingar og dægrastyttingar ásamt hæfi-
legum skammti af fróðleik og eru þau öll
félagmönnum að kostnaðarlausu.
Til dæmis hefur Efling boðið upp á
starfslokanámskeið fyrir félagsmenn í
Eflingu í mörg ár. Það hefur verið sífelld
þörf og nú er komið að því að bjóða upp
á þetta vinsæla námskeið í vor. Það
helsta sem farið er yfir á námskeiðinu
eru tryggingamál, lífeyrisréttindi, áhrif
starfsloka, heilsufar, öryggismál, hús-
næðismál og félags- og tómstundastarf
þegar fólk er hætt á vinnumarkaði.
Síðan eru styttri námskeið um ræktun
kryddjurta, grænmetisútskurð ofl .
Með hliðsjón af þessu er ekki spurning
hvort þú vilt styrkja þig með námi, held-
ur hvaða nám þú velur hjá Eflingu eða
okkar samstarfsaðilum, segir Sigurrós
Kristinsdóttir að lokum.
Framfaraspor
inn í framtíðina
-
segir Sigurrós Kristinsdóttir, formaður stjórnar Mímis
Viðurkenning sem fræðsluaðili
Það var kátt á hjalla hjá Mími Símennt
un í vikunni fyrir jól þegar skólinn
fagnaði 10 ára afmæli sínu og tók um
leið við tveimur mikilvægum viðurkenn
ingum, annarri frá menntamálaráðherra
en hinni frá Fræðslumiðstöð atvinnulífs
ins. Sigurrós Kristinsdóttir er formaður
stjórnar Mímis og minnti að þessu
tilefni á mikilvægi Mímis fyrir starfs
menntun á vegum stéttarfélaganna þar
sem Mímir hefði reynst ómetanleg stoð
við fólkið í félögunum.
Sigurrós sagði í stuttu ávarpi við þetta tæki-
færi að hún vildi þakka þessar viðurkenn-
ingar og það fer vel á því að þær væru veittar
á 10 ára afmæli Mímis Símenntunar en eins
og alkunna er hefur Mímir símenntun verið
mikil stoð í okkar starfi í verkalýðshreyfing-
unni og Eflingu. Hún sagðist vilja líta svo á
að viðurkenning Menntamálaráðuneytisins
sem fræðsluaðila á grundvelli laga um fram-
haldsfræðslu og það á reyndar einnig við um
gæðavottun á grundvelli EQM væri einmitt
mikil viðurkenning á starfi okkar í stétt-
arfélögum og meðal samstarfsaðila. Stóra
markmiðið okkar allra er að lyfta grundvelli
starfsmenntunar í landinu og efla starfsfólkið
í fyrirtækjunum til menntunar, sagði hún.
Það var mikið gæfuspor á sínum tíma að
stofna Mími Símenntun þar sem þetta fyrir-
tæki er eiginlega grunnur mest allrar mennt-
unar á okkar sviði í stéttarfélögunum, sagði
hún.
Hún sagði að það væri mjög ofarlega í huga
sér við áfanga sem þennan að hefðum aldrei
getað unnið alla þá sigra sem við höfum
fengið að njóta án þess starfsfólks sem hér
starfar. Við vinnum daglega með þessu ágæta
starfsfólki og það er fyrir dugnað þess og
framsækni, frumkvæði og góðar hugmyndir
sem okkur miðar svo vel sem raunveruleik-
inn hér í dag sýnir svo vel, sagði hún.
Hún sagðist síðan að lokum vonast ég til að
þessi áfangi verði ekki sá síðasti heldur marki
hann áfram tímamót um vegferðina á næstu
árum.
Glæsilegur áfangi á tíu ára afmæli Mímis Símenntunar
Þrjár góðar með fangið fullt af viðurkenningum. Sigurrós Kristinsdóttir,varaformaður Eflingar, Katrín Jakobsdóttir,
menntamálaráðherra og Hulda Ólafsdóttir, skólastjóri Mímis Símenntunar