14
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Nám
Mörg spennandi tækifæri til náms
Það eru mjög mörg spennandi tæki
færi til náms hjá Eflingu og við erum
mjög stolt af þeirri menntun semEfl
ing býður upp á og oft er hvatinn að
frekara námi, segir Sigurrós Krist
insdóttir í viðtali við Eflingarblaðið.
Við erum með spennandi verkefni
fyrir félagsliða og leikskólaliða hjá
okkur og af föstum liðum öðrum
vil ég nefna Grunnmenntaskólann
sem er mjög mikilvægt nám fyrir þá
sem vilja byggja sig upp í starfi eða
fyrir frekara nám, segir Sigurrós og
er greinilegt að hún þekkir þennan
hluta starfsemi félagsins vel og hef
ur mikinn áhuga á því starfi sem
fram fer í fræðslumálum félagsins.
Sigurrós vill gjarna koma því á framfæri
að mikið af því námi sem Efling býður
félagsmönnum er í góðu samstarfi við
Mími símenntun, þar starfar frábært
starfsfólk með mikinn metnað og er ára-
löng hefð fyrir nánu samstarfi þessara
aðila. En það er margt fleira sem hún
nefnir þó allt of langt sé að telja upp
allt nám sem boðið er upp á í samstarfi
Eflingar og fræðsluaðila.
Orku námið
okkar fyrir félagsmenn af
erlendum fór af stað í haust. Þrír hópar
fóru af stað og útskrifuðust nemendur
sl. 18. desember 2012. Um er að ræða
270
kennslustunda nám fyrir fólk af er-
lendum uppruna. Námið byggist þann
ig upp að tvær námsleiðir Fræðslumið-
stöðvar atvinnulífsins hafa verið settar
saman, þ.e.a.s.
Landnemaskólinn
120
kennslustundir og
Sterkari starfsmað
ur
(
upplýsingatækni og samskipti) 150
kennslustundir. Landnemaskólinn er
sérstaklega sniðinn að þörfum inn-
flytjenda á Íslandi sem langar að styrkja
stöðu sína í íslensku samfélagi. Sterkari
starfsmaður er námsleið sem er hannað
með hliðsjón af þörfum fólks með stutta
skólagöngu sem vill auka færni til að
takast á við breytingar, stuðla að jákvæðu
viðhorfi til starfa og auka færni í upplýs-
ingatækni og tölvum. Nemendahóparnir
voru allir pólskumælandi enda pólverjar
langstærsti erlendi hópurinn innan Efl-
ingar. Boðið er upp á námið annarsvegar
fyrir nemendur sem styttra eru komnir
í íslensku og hinsvegar þá sem lengra
eru komnir. Nemendurnir taka sem
svarar tveimur stigum í íslensku eða alls
120
kennslustundir í íslensku.
Orka
er
byggt á hugmyndafræði Yrkju en Efling
og Mímir fengu meðal annars Evrópsku
tungumálaverðlaunin árið 2010 fyrir það
nám.
Sigurrós nefndi einnig
grunnstoðir
,
sem er afar spennandi námsleið sem er
samsett af nokkrum námskrám Fræðslu-
miðstöðvar atvinnulífsins og opnar hún
mörg tækifæri fyrir þá sem hyggja á frek-
ara nám í skólakerfinu og er aðgöngumiði
inn í frekara nám. Meðal annars hafa
Keilir og HR tekið við nemendum beint
úr grunnstoðum inn í frumgreinadeildir
sínar.
Frekar illa hefur gengið að fara á stað
með fagnámskeið fyrir þá sem starfa á
leikskólum,en við náðum að fylla nám-
skeið í samvinnu við Leikskólasvið
og fer það á stað núna í janúar. Síðan
verður boðið upp á annað fagnámskeið
í vor á hefðbundnum tíma. Það þýðir
vonandi að góður taktur komist aftur á
í þessu mikilvæga námi, segir Sigurrós.
Félagsliði í nýju landi og þjónustuliði
Félagsliði í nýju landi og þjónustuliði
í nýju landi eru námsleiðir sem Efling
-
segir Sigurrós Kristinsdóttir, varaformaður
Ekki spurning hvort þú vilt styrkja þig
með námi heldur hvaða nám þú velur
Ljósm. Jón Páll Vilhelmsson