20
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Framkvæmdir
Við höfum trú á framtíð þessarar
greinar sjávarútvegsins segir Vilhjálmur
Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda hf,
sem tók fyrstu skóflustunguna að nýrri
frystigeymslu og flokkunarhúsi fyrirtæk­
isins 23. nóvember sl. Frystigeymslan
mun leysa af hólmi leiguhúsnæði fyrir­
tækisins og skapa framleiðsluferlinu
viðunandi meðferð og betri aðstöðu.
Hjá fyrirtækinu vinna um 200 Eflingar­
félagar í landi en alls vinna þar 825
manns, 325 sjómenn og 500 manns í
landi. Þó að framkvæmdin hafi ekki
bein áhrif á vinnu Eflingarfélaga hjá
fyrirtækinu skapar hún atvinnutækifæri
því við framkvæmdirnar verða til um 60
störf á mánuði en áætlað er að verkinu
ljúki í maí á næsta ári.
Við höfum verið með húsnæði á leigu sem
er ekki á okkar athafnasvæði og því algjör
draumur hjá okkur að byggja við löndunar-
svæði togaranna og eiga möguleika á því að
lesta flutningarskip beint úr frystigeymsl-
unni við sama legukant, segir Vilhjálmur
Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda. Nýja
frystigeymslan mun rísa á fyllingunni austan
við aðsetur HB Granda á Norðurgarði vð
Gömlu höfnina í Reykjavík og verður 2600
fermetrar að grunnfleti auk flokkunarrýmis
sem verður sambyggt geymslunni og verður
1200
fermetrar að stærð. Í frystigeymslunni
verður rými fyrir 5000-6000 tonn af frystum
afurðum. Þetta er fyrst og fremst hagræð-
ing og skapar okkar framleiðslu viðunandi
meðferð og góða aðstöðu, segir Vilhjálmur.
Margar hendur koma að stóru verki
Það er að mörgu að huga í stórframkvæmd
sem þessari og munu heilmargir aðilar koma
að verkinu. Íslenskir aðalverktakar munu
sjá um byggingu hússins og jarðvegsvinnu,
Kælismiðjan Frost útvegar frystikerfið,
Rafeyri sér um rafmagnsmálin og AVH arki-
tektar og verkfræðistofa mun sjá um hönn-
um og hafa eftirlit með verkinu. Áætlað er
að um sextíu manns vinni að meðaltali að
verkinu í hverjum mánuði þangað til fram-
kvæmdum lýkur í maí á næsta ári en þannig
skapa framkvæmdirnar um 30 ársstörf.
Einnig munu listamenn leggja sitt af
mörkum því efnt hefur verið til lokaðrar
hugmyndasamkeppni um listaverk á eða við
suðausturgafl nýrrar frystigeymslu. Það kom
til umræðu að fá listamenn til að vinna að
útliti frystigeymslunnar sjálfrar í samstarfi
við arkitekt en niðurstaðan varð að efna til
þessara samkeppni og mun dómnefnd velja
listamann í samræmi við ferli sem Samband
íslenskra myndlistarmanna (SÍM) hannaði,
segir Vilhjálmur.
Trú á framtíðinni
Gengislækkunin sem varð eftir hrun varð til
þess að auka útflutningstekjur og við höfum
nýtt okkur það til að borga niður skuldir
kröftuglega, afkoman er nokkuð góð og því
vonumst við til að fjármagna bygginguna
með eigin fé, segir Vilhjálmur. Alltaf sé verið
að leita leiða til að gera betur og endur-
skoða. Við erum upp undir þaki í veiðiheim-
ildum en við höfum möguleika að vinna þau
betur og það eru fyrst og fremst möguleikar
sem við skoðum í dag, segir hann.
Vilhjálmur segir að mönnum sé efst í huga
auknar álögur og frumvörp sem verið sé að
boða í greininni og að gífurlegur tími og orka
hafi farið hjá honum í að kynna sér þau mál
sem hafi oftar en ekki endað á byrjunarreit.
Þetta hefur lamandi áhrif og dregur úr öllum
framkvæmdum og framþróun en við aðlög-
um okkur eins og við getum hverju sinni.
Við vitum það að félög sem eru ekki sterk
fyrir munu eiga mjög erfitt og mörg munu
ekki hafa burði til að borga veiðigjaldið
en við trúum því að aðstaðan til framtíðar
verði góð og að fyrirtæki geti staðið á góðum
rekstri. Rekstrarfélagið okkar er tiltölulega
skuldlítið og vel mannað bæði til lands og
sjávar með mikla þekkingu. Ef ekki er hægt
að reka fyrirtæki á þessum grunni þá er það
ekki hægt yfir höfuð.
Við trúum því ekki til lengri tíma litið að
umhverfi þessarar atvinnugreinar verði
þannig að okkur verði gert ókeift að vinna í
henni, segir Vilhjálmur að lokum.
Um þrjátíu ársstörf
skapast
HB Grandi hf í framkvæmdum
-
segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri
Afkoman er nokkuð góð og því
vonumst við til að fjármagna
bygginguna með eigin fé