Viðtalið
21
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Dagbókin
„
Ég var búin að taka eftir auglýsingum frá Heilsuborg í þó nokkurn tíma
og var búin að vera að hugsa lengi um að fara að gera eitthvað í mínum
málum. Núna hef ég náð góðum árangri, náð að losna við mörg kíló og
er bara svo miklu hressari og með miklu meiri orku. Ég gæti ekki breytt
um lífstíl ef ég mætti ekki borða neitt, þarna er ekkert bannað! Maður
verður að vilja gera þetta fyrir sig sjálfan. Þetta snýst ekki um það að
megra sig þetta snýst um að lifa heilbrigðara lífi og koma sér í gott
líkamlegt og andlegt form.“
Helga Einarsdóttir
Dagbók Eflingar-stéttarfélags fyrir
árið 2013 er komin út og hefur
þegar verið send félagsmönnum. Í
bókinni er nú að finna allar helstu
upplýsingar sem eru mikilvægar
fyrir félagsmenn Eflingar. Dag
bókin liggur frammi í afgreiðslu
félagsins og er jöfn eftirspurn
eftir henni allt árið. Að þessu sinni
hefur innihaldi verið breytt í sam
ræmi við breytingar hjá félaginu og
almanakinu gefið aukið rými sem
eykur notagildi bókarinnar.
Í dagbókinni er fjallað um öll helstu
mál sem snerta félagsmenn, réttindi og
skyldur launafólks þannig að reynt er að
miða við að bókin geti nýst launafólki
á vinnustöðum til að gefa fyrstu upp-
lýsingar. Hér er því að finna helstu upp-
lýsingar um Eflingu, sjóði félagsins og
annað gagnlegt.
Greinargóðar upplýsingar eru um rétt-
indi í fræðslu, orlofs- og sjúkrasjóði og
helstu atriði varðandi réttindi atvinnu-
leitenda. Vegna erfiðs atvinnuástands
er þessi kafli ítarlegri en ella en gert er
ráð fyrir að þörf verði fyrir þessar upp-
lýsingar á árinu 2013.
Mikilvægt er að félagsmenn hafi sam-
band við skrifstofu Eflingar ef þeir fá
ekki heimsenda dagbók. Þá verður bætt
úr því eins fljótt og kostur er.
Dagbók Eflingar 2013
Ætlar þú að
breyta um lífsstíl?
Heilsulausnir
hentar einstaklingum sem glíma við offitu,
hjartasjúkdóma og/eða sykursýki
•
Þjálfun, fræðsla, einstaklingsviðtöl og aðhald
•
Hefst 21. janúar og 18. mars
•
Skráning í síma 560 1010 eða á
Að námskeiðinu standa m.a. hjúkrunarfræðingar,
íþróttafræðingar, læknir, næringarfræðingur,
sálfræðingar og
sjúkraþjálfarar