22
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Hulda Helgadóttir framkvæmdastjóri
HH Ráðgjafar segir að huga þurfi að
mörgu við atvinnuleit. Í dag er t.d. mjög
algengt að senda ferilskrá og jafnvel
kynningarbréf með umsókn um starf.
Fyrstu kynni atvinnurekanda af umsækj-
anda eru gögnin sem hann fær send og
því er afar mikilvægt að vanda vel til
verka.
Nokkur lykilatriði þarf að hafa í huga við
gerð ferilskrár og má þar fyrst nefna að hún
þarf að vera aðgengileg þannig að ekki þurfi
mikinn tíma til að átta sig á aðalatriðum
hennar. Það hefur sýnt sig að atvinnurekandi
með margar ferilskrár til yfirlestrar eyði innan
við 10 sekúndum í fyrstu yfirferð hverrar
ferilskrár og því skiptir höfuðmáli að hún sé
mjög aðgengileg og auðlesin. Ekki er mælt
með að setja ferilskrá upp í ritgerðarformi
heldur fremur sem upptalningu sem má
síðan setja nánari útskýringar við. Ennfremur
er mælt með að ferilskrá sé ekki of löng og
oft talað um að reyna að halda sig við eina
til tvær blaðsíður. Þegar vinnuveitandi hefur
skimað yfir ferilskrá og sér að viðkomandi býr
yfir reynslu, menntun eða öðru sem hann
er að leita eftir mun hann lesa hana ítarlega
yfir. Kynningarbréf má síðan nota til að draga
fram þau atriði sem umsækjandi telur að
skipti sérstaklega máli vegna viðkomandi
starfs, t.d. útlista hvað hann telur sig hafa
fram að færa og hvers vegna hann er góður
valkostur í starfið.
Vel undirbúin(n) í viðtalið
Atvinnuviðtalið sjálft getur reynst fólki erfitt
og þá hjálpar að vera vel undirbúinn. Gott
er að hafa kynnt sér viðkomandi fyrirtæki
og starfsemi þess vel áður en til viðtalsins
kemur. Oft á tíðum eru fyrirtæki með heima-
síður þar sem finna má mikið af þessum
upplýsingum. Einnig reynist vel að vera
búinn að hugleiða hvað kosti og hæfni þú
hefur til að bera og gera þig ákjósanlegan í
starfið. Atvinnuviðtal er ekki rétti staðurinn
til að sýna hógværð en þó er rétt að taka fram
að yfirleitt kann það ekki góðri lukku að stýra
að segjast kunna eitthvað sem ekki er sann-
leikanum samkvæmt. Útlit skiptir ekki síður
máli en framkoma og nauðsynlegt er að vera
snyrtilegur og vel til hafður í viðtali. Ágætis
þumalputtaregla er að taka mið af því um
hvernig starf og vinnustað er að ræða og velja
fatnað eftir því, segir Hulda.
Gögnin eru fyrstu kynni
af umsækjanda
-
segir Hulda Helgadóttir hjá HH Ráðgjöf
Atvinnuviðtal er ekki rétti staðurinn
til að sýna hógværð
Mikilvægt að standa rétt að atvinnuleit
Atvinnuleit
Efling-stéttarfélag
Hvað er í boði fyrir atvinnuleitendur?
Haldið verður áfram með styttri fræðslufundi og frá miðjum janúar og fram að vori verða opnir fundir alla miðviku-
daga kl.13.00 hjá Eflingu stéttarfélagi, Sætúni 1 á 4 hæð. Boðið verður upp á stutta fræðslu um ýmis málefni er
snerta atvinnuleitendur. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Eflingar stéttarfélags
þegar nær
dregur. Auglýsingar koma inn fyrir hvern miðvikudag. Vonum að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi.
Í lok nóvember og byrjun desember var boðið upp á þrjú fræðsluerindi fyrir atvinnuleitendur hjá Eflingu. Helena Jónsdóttir, sálfræð-
ingur hjá Kvíðameðferðarmiðstöðinni kynnti Hugræna atferlismeðferð: Breytt hugarfar, bætt líðan, Öryggi í samskiptum: Hvernig efli
ég styrkleika mína og Virkni í atvinnuleit: Algengar hindranir og mögulegar lausnir. Góð þátttaka og umræða var á þessum fyrirlestrum.