23
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Atvinnuleit
Við langvarandi atvinnuleysi er algengt
að fólk missi móðinn. Mikilvægt er að
halda virkni, bæði í atvinnuleitinni og
hvað varðar endurmenntun. Einnig er
afar áríðandi að viðhalda félagslegri
virkni segir Sverrir Hjálmarsson vinnu-
sálfræðingur hjá HH Ráðgjöf. Það má
segja að það sé vinna að leita sér að
vinnu.
Gott er að skipuleggja sig vel og í raun útbúa
ákveðna dagskrá fyrir hvern dag sem gæti
verið á þá leið að í upphafi dags sé farið á
síður allra ráðningastofa og farið yfir nýjar
auglýsingar um laus störf bæði hjá þeim sem
og í blöðum og öðrum miðlum.
Það er algengur misskilningur að nægjanlegt
sé að skrá sig á ráðningastofu og jafnvel bara
eina. Við hvetjum fólk til að skrá sig á allar
stofurnar og fylgjast jafnframt mjög vel með
auglýstum störfum og sækja sérstaklega um
þau sem vekja áhuga. Sá möguleiki er alltaf
fyrir hendi að einstaklingur komi ekki upp í
leit og eins er það mjög hjálplegt fyrir okkur
að fá umsóknir á störfin því þannig áttum
við okkur enn betur á því hverju viðkomandi
einstaklingur er að leita að, segir Sverrir að
lokum.
Það er vinna að
leita að vinnu
-
segir Sverrir Hjálmarsson hjá HH Ráðgjöf
Við ráðleggjum fólki að skrá sig á
allar stofurnar
Nánari upplýsingar og innritun í síma 585-5860 og á
Fyrirspurnum einnig svarað á netfanginu
Ný námskrá kemur út íum miðjan janúar og verður aðgengileg á heimasíðu skólans