3
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Viðtalið Leiðari
JANÚAR 2013
1.
TÖLU­BLAÐ, 18. ÁR­GANG­UR
UPP­LAG 20.000 EIN­TÖK
Út­gef­andi:
Efl­ing-stétt­ar­fé­lag
Sæ­túni 1
Á­byrgð­ar­mað­ur
Sig­urð­ur Bessa­son
Ritstjóri
Þráinn Hallgrímsson
Aðstoð við ritstörf og útgáfu
G. Róbert Ágústsson
Herdís Steinarsdóttir
Sigríður Ólafsdóttir
Rit­stjórn
Atli Lýðs­son
Sig­urð­ur Bessa­son
Sig­ur­rós Krist­ins­dótt­ir
Starfs­menn á skrif­stofu
Anna Lísa Terr­azas
Arna Björk Árnadóttir
Atli Lýðs­son
Berg­lind Dav­íðs­dótt­ir
Elín Bald­urs­dótt­ir
Elín ­Hanna Kjart­ans­dótt­ir
Fjóla Jónsdóttir
Guð­rún Kr. Óla­dótt­ir
­
Harpa Ó­lafs­dótt­ir
Harpa Þórðardóttir
­
Helga Sig­urð­ar­dótt­ir
Helga Bryndís Kristjánsdóttir
Her­dís Stein­ars­dótt­ir
Hrannar Gíslason
Ingibjörg Ólafsdóttir
Jóna Sigríður Gestsdóttir
Kol­brún S. Jóns­dótt­ir
Krist­jana Val­geirs­dótt­ir
Odd­ný Ein­ars­dótt­ir
Pétur Gauti Jónsson
Ragn­ar Óla­son
Ragn­heið­ur Bald­urs­dótt­ir
Sigríður Ólafsdóttir
Sig­urð­ur Bessa­son
Sig­ur­rós Krist­ins­dótt­ir
Soff­ía Erla Ein­ars­dótt­ir
­
Sveinn Ingva­son
­
Tryggvi Mart­eins­son
Þór­ir Guð­jóns­son
Þórunn Birgisdóttir
Þrá­inn Hall­gríms­son
Starfs­afl
­
Sveinn Að­al­steins­son
Val­dís Stein­gríms­dótt­ir
Út­lit og um­brot
Þorfinnur Sigurgeirsson
Prent­un og bók­band
Aug­lýs­ing­ar
Hænir s. 55 88 100
For­síðu­mynd
Drengir og hundur að leik í Reykjavík
Að­set­ur
Efl­ing-stétt­ar­fé­lag, ­Sætún 1
Sími 510 7500 / fax 510 7501
Skrif­stofa Efl­ing­ar er opin
frá kl. 08.15-16.00
Skrif­stofa Suð­ur­landi
Aust­ur­mörk 2
810
Hvera­gerði
Sími 510 7575 / fax 510 7579
Net­fang
EFNISYFIRLIT
Sigurður Bessason
Sannleikanum verður hver sárreiðastur
Mikil reiði greip um sig meðal forystumanna í ríkisstjórninni þegar Alþýðusamband Íslands sendi
frá sér auglýsingu um vanefndir stjórnvalda á fyrirheitum í tengslum við síðustu kjarasamninga
ASÍ og Samtaka atvinnulífsins.
Bæði atvinnumálaráðherra og forsætisráðherra lýstu mikilum vonbrigðum með auglýsinguna og
það vakti athygli hve viðbrögð þeirra voru vanstillt og stóryrt. Sérstaka athygli vakti einnig hvernig
forystumenn ríkisstjórnarinnar persónugerðu vandann í forseta ASÍ.
Allt ber þetta vott um óvandaða og skrumskælda íslenska umræðuhefð. Það er fullkomlega eðli-
legt að Alþýðusambandið og Samtök atvinnulífsins fari yfir öll þau atriði sem snúa að kjarasamn-
ingunum og málum nú þegar um ár er eftir af samningstímabilinu. Um er að ræða gríðarlega
hagsmuni launafólks og atvinnurekenda og fráleitt að þessir aðilar hafi ekki uppi kynningu á
sjónarmiðum sínum er varða möguleika á framlengingu gildandi kjarasamninga.
Því er stundum haldið fram og er áberandi í umræðunni nú m.a. af hálfu stjórnmálamanna að
aðilar vinnumarkaðar hafi of mikil áhrif á stefnumótun stjórnvalda í mikilvægummálaflokkum svo
sem í fjárlögum ríkisins, skattamálum og ýmsum öðrum þáttum sem tengjast fjármálum ríkisins.
Þetta eru mjög vanhugsuð sjónarmið. Öll skattlagning á einstaklinga og fyrirtæki hefur áhrif á
stöðu launafólks, ráðstöfunartekjur þeirra og lífsafkomu. Margir þessara þátta eins og t.d. trygg-
ingagjaldið eiga sér uppruna í baráttu launamanna fyrir mannsæmandi kjörum og launum í at-
vinnuleysi. Barnabætur og vaxtabætur geta haft afgerandi áhrif á afkomu ungra fjölskyldna. Ef
Alþýðusamband Íslands færi að þessum sjónarmiðum gagnrýnenda, væru öflugustu og fjölmenn-
ustu samtök launafólks um leið að samþykkja algert áhrifaleysi varðandi afkomu stórra hópa
launamanna.
Í íslensku orðtæki segir að sannleikanum verði hver sárreiðastur. Staðreyndin er sú að ríkisstjórn
Íslands hefur ekki staðið við fjölmörg fyrirheit sem gefin voru við gerð kjarasamninganna. Það eru
engir betur til þess fallnir en aðilar vinnumarkaðar að meta hvað er hæft í því. Þeir einir vita hvað
rætt var og skjöl sem staðfesta fyrirheitin liggja öll fyrir.
Það er ljóst að ekki hefur verið staðið við mikilvægar aðgerðir í atvinnumálum. Átakið VIRKNI
2013
er góðra gjalda vert en tekur ekki á framtíðaruppbyggingu atvinnumála hér á landi. Það er
öllum ljóst að framkvæmdir samkvæmt rammaáæltun eru í uppnámi. Gengi krónunnar sem var
til viðmiðunar í kjarasamningunum er á stöðugri niðurleið og helsta viðmið Seðlabanka og ríkis-
stjórnar í verðbólgutölu er langt frá því að standast. Þá er það alvarlegt að ríkisstjórnin skattleggur
nú lífeyrisréttindi á almennum markaði sem gengur beint gegn fyrirheitum um að jafna rétt milli
opinberra starfsmanna og almenna markaðarins. Gefin voru fyrirheit um að stíga fyrstu skrefin til
jöfnuðar í lífeyrismálum og það hefur ekki verið efnt. Þá er ágreiningur milli aðila um það hvort
stjórnvöld hafa hækkað bætur atvinnuleysistrygginga og almannatrygginga til jafns við hækkun
lægstu launa.
Í lýðræðisþjóðfélagi verðum við að sætta okkur við að þola sjónarmið hvers annars. Það er alveg
ljóst að komið er að þolmörkum þess sem lifandi verkalýðshreyfing getur látið bjóða sér fyrir hönd
launamanna. Þetta verða stjórnvöld að þola hversu bitur sem þessi sannleikur er.
Mikil óvissa í spilunum . . . . . . . . .4
Hvað segja sjómenn? . . . . . . . . . 6
Endurskoðun kjarasamninga . . . . . . .8
Tap launamanna vegna svartrar vinnu . . . 9
Verðhækkanir dynja á landanum . . . . .10
Nýr samningur um Bókasafn Dagsbrúnar . . .11
Lífeyrissjóðirnir eru réttindin okkar . . . .12
Mörg spennandi tækifæri til náms . . . .14
Hvað gera þjónustufulltrúar? . . . . . .18
Um þrjátíu ársstörf skapast . . . . . . 20
Hvað er í boði fyrir atvinnuleitendur . . . 22
Hvaða nám hentar þér? . . . . . . . .24
Útskriftir . . . . . . . . . . . . .26
Stefnt að stækkun byggðar . . . . . . 32
Páskaúthlutun orlofshúsa . . . . . . . 33
Eftirminnileg ferð til Aberdeen . . . . . 34
Heimsókn að hjúkrunarheimilinu Ási . . . 36
Enginn falli af bótum án tilboðs um starf . .38
Dagsbrúnarsagan komin út . . . . . . 40
Fylltist sjálfstrausti á ný . . . . . . . 42
Sigurður Bessason
formaður Eflingar-stéttarfélags