36
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Vinnustaðaheimsókn
Vinnustaðaheimsókn á Hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði
Á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Ási
í Hveragerði er fjölbreytt starfsemi
og meðal starfsmanna er stór hópur
félagsmanna í Eflingu. Við tókum hús
á dvalargestum og leiðbeinendum á
vinnustofu í lágreistu húsi á baklóð
aðalbyggingar dvalarheimilisins og var
vel tekið.
Þórdís Kristín Öfjörð sagðist hafa unnið á
Grund í þrú ár og Ási í 26 ár og unnið við
Vinsælast að prjóna, búa til kerti,
sauma út og mála
-
segir Þórdís Öfjörð
ræstingar, í eldhúsi, umönnun og núna er
hún leiðbeinandi á vinnustofunni ásamt
Guðmundu Guðmundsdóttir. Aðspurð segir
hún að vinnustofan sé opin frá klukkan átta
að morgni og fjögur síðdegis og þeir sem
koma hingað hafa ýmsa valmöguleika á
verkefnum. En vinsælast er að prjóna, sauma
út, búa til kerti, og mála. Svo erum við með
smíðastofu í gömlum skúr á lóðinni og þrír
karlar eru þar núna við smíðar. Þá erum við
með þrjár hænur í litlum hæsnakofa og sami
maður hugsar um þær og er þetta gert til þess
að hafa hlutina sem heimilislegasta. Svo er
spilað bingó og félagsvist hálfsmánaðarlega
og hvoru tveggja er vel sótt. Við héldum
litlu jólin í desember og fengum séra Pétur
Þorsteinsson prest hjá Óháða söfnuðinum í
heimsókn og sungum saman nokkur jólalög,
sagði hún að lokum.
Þórdís Kristín Öfjörð, leiðbeinandi ásamt tveimur konum sem dvelja á Ási og vinnugleðin leynir sér ekki