38
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Þjóðarátak
-
segir Runólfur Ágústsson, verkefnastjóri
Fyrir nokkrum dögum skrifuðu for­
svarsmenn stéttarfélaga í landinu
undir samkomulag við ríki, sveitar­
félög og atvinnurekendur um úr­
ræði fyrir þann gríðastóra hóp fólks
sem missti vinnuna eftir hrun og er
nú að tæma sinn bótarétt hjá At­
vinnuleysistryggingasjóði. Heildar­
kostnaður sjóðsins við verkefnið
eru 2,7 milljarðar króna og segir
Runólfur Ágústsson sem stýrir verk­
efninu að markmið þess sé að virkja
atvinnuleitendur, sem hafa full­
nýtt eða munu að óbreyttu fullnýta
rétt sinn innan atvinnuleysistrygg­
ingakerfisins, til þátttöku að nýju
á vinnumarkaði. Það er gríðarlega
mikilvægt að þetta verkefni takist
vel, segir hann.
Atvinnuleitendum, sem hafa fullnýtt
rétt sinn innan atvinnuleysistrygginga-
kerfisins á tímabilinu frá 1. september
2012
fram til 31. desember 2013, sam-
tals 3.700 atvinnuleitendum, verður
þannig öllum boðin vinna eða starfs-
endurhæfing á árinu 2013. Þannig á að
tryggja að enginn falli af atvinnuleysis-
bótum án þess að fá slíkt tilboð, segir
Runólfur.
Megininntak verkefnisins er eftirfarandi
varðandi þennan hóp atvinnuleitenda:
Vinna fyrir alla þá sem eru vinnu-
færir og vilja vinnu
Atvinnutengd endurhæfing fyrir þá
sem eru óvinnufærir
Sérstakur tímabundinn framfærslu-
styrkur, svokallaður biðstyrkur er
veittur, náist ekki að bjóða starfs-
tengd vinnumarkaðsúrræði áður en
einstaklingur fullnýtir bótarétt sinn.
Lögboðin þjónusta VMST eða Starfs
við alla atvinnuleitendur tryggð óháð
bótarétti
Áætlað er að 60% taki tilboði um vinnu
og þurfa því samtals 2.200 sex mánaða
störf að vera í boði á árinu 2013. Sam-
kvæmt samkomulaginu mun sveitar-
félög að lágmarki skapa 660 störf (30%)
á tímabilinu, ríkið 220 störf (10%) og
almenni vinnumarkaðurinn 1.320 störf
(60%).
Þessi störf eru vissulega tíma-
bundin en rannsóknir sýna að í mörgum
tilfellum verða þau varanleg. Þessa sex
mánuði fá atvinnurekendur sem ráða
langtímaatvinnulausa til nýrra starfa
Enginn falli af bótum án tilboðs
um starf eða starfsendurhæfingu
Liðstyrkur
Þjóðarátak stéttarfélaga, atvinnurekenda, sveitarfélaga og ríkisstjórnarinnar
gegn langtímaatvinnuleysi: