Viðtalið
39
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Þjóðarátak
styrk til að niðurgreiða stofnkostnað
við þau störf sem nemur grunnbótum
ásamt 8% framlagi í lífeyrissjóð.
Hvað starfsendurhæfingu varðar, þá
bendir fyrri reynsla til að gera megi
ráð fyrir að allt að 25% hópsins sé ekki
vinnufær eða samtals 900 einstaklingar
sem þurfi þar af leiðandi á atvinnu-
tengdri endurhæfingu að halda, svo
sem hjá VIRK, starfsendurhæfingar-
sjóði. Slík þjónusta verður tryggð og
sömuleiðis framfærsla grundvölluð á
bótarétti viðkomandi á meðan á starfs-
endurhæfingu stendur.
Tryggður verður biðstyrkur náist ekki að
bjóða starfstengd vinnumarkaðsúrræði
áður en atvinnuleitendur hafa samtals
verið 42 mánuði innan atvinnuleysis-
tryggingakerfisins. Atvinnuleitandi sem
hefur verið tryggður innan atvinnu-
leysistryggingakerfisins samtals skemur
en 42 mánuði 1. janúar 2013 getur þá
fengið framfærslustyrk úr Atvinnuleys-
istryggingasjóði sem nemur þeim rétti
sem hann/hún átti áður innan kerfisins.
Styrkurinn er háður því að viðkomandi
hafi ekki hafnað því virkni- eða atvinnu-
úrræði sem stóð til boða. Heimilt er að
greiða styrkinn í allt að sex mánuði en
aldrei lengur en að því tímamarki að
viðkomandi er boðið starfstengt vinnu-
markaðsúrræði.
Þá tryggir verkefnið einnig lögboðna
þjónustu við þann fjölda atvinnuleit-
enda sem ekki á bótarétt hjá Atvinnu-
leysistryggingasjóð en nýtur fjárhags-
stuðnings sveitarfélaga. Áætlaður fjöldi
atvinnuleitenda sem njóta framfærslu
sveitarfélaga er 1.500. Þessi hópur mun
nú geta leitað til Vinnumálastofnunar
eða Starfs og fengið þar greiningarviðtöl
og ráðgjöf eins og aðrir þeir sem eru í
atvinnuleit og fá þjónustu hjá stofnun-
inni. Miðað er við að hefja þessa þjón-
ustu sem fyrst á árinu 2013 en þó eigi
síðar en í september.
Áfram verður lögð áhersla á virkt sam-
starf um þjónustu við ungt fólk á
aldrinum 16–25 ára sem nýtur fjár-
hagsaðstoðar hjá félagsþjónustu sveitar-
félaga og að í því sambandi verði skoðuð
aðkoma fleiri sveitarfélaga að Atvinnu-
torgunum. Mikilvægt er að koma þeirri
þjónustu á sem fyrst á árinu 2013.
Enn fremur verði komið á styrku sam-
starfi Vinnumálastofnunar, félagsþjón-
ustu sveitarfélaga og VIRK, starfsendur-
hæfingarsjóðs, um ráðgjöf og þjónustu
við þá sem þurfa á atvinnutengdri
starfsendurhæfingu að halda.
Að lokum verður vinnumiðlun og ráð-
gjöf hjá Vinnumálastofnun og STARFI
stórefld svo unnt verði að framkvæmda
þetta metnaðarfulla og viðamikla verk-
efni. Nauðsynlegt er að fjölga ráðgjöfum
og vinnumiðlunum hjá þessum aðilum
en reynsla fyrri verkefna sýnir að of
mikið álag er á ráðgjöfum. Því verða
framlög til vinnumiðlunar og ráðgjafar
aukin verulega á árinu 2013.
Runólfur segir að með þessu metnaðar-
fulla átaki sameinast hagsmunaaðilar á
vinnumarkaði með einstökum hætti til
að bregðast við afleiðingum hrunsins.
Hér er öllum tryggt tækifæri til inn-
komu á vinnumarkaðinn að nýju. Slíkt
er óþekkt í okkar nágrannalöndum og
ljóst er að gríðarmikil vinna er fram-
undan til að þetta metnaðarfulla mark-
mið náist. Þar þurfum við öll að vinna
saman, segir hann að lokum.
Runólfur Ágústsson er formaður stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs og verkefnastjóri.
Skorað á atvinnurekendur að taka sig á
Það hefur komið í ljós á fundum
Eflingar með atvinnuleitendum á
síðustu vikum að mikill misbrestur
er á því að fyrirtæki og atvinnurek­
endur svari almennt fólki sem er að
leita eftir störfum hjá fyrirtækjunum.
Sérstaklega hefur þetta komið fram
í vonbrigðum atvinnuleitenda sem
komnir eru yfir ákveðinn aldur og er
aldurinn 55 ára oft nefndur í þessu
sambandi. Fram hefur komið að fólk
eyðir oft miklum tíma og orku í að
leita eftir störfum hjá fyrirtækjum
sem aldrei svara umsóknum og jafn­
Ótrúlega léleg svörun við atvinnuumsóknum
vel þurfa einstaklingar að skila inn
mjög persónulegum upplýsingumen
fá síðan engin svör við umsóknum
sínum. Kannanir Eflingar benda til
hins sama. Þannig kom í ljós á síðasta
ári í könnun sem fyrirtækið Maskína
gerði fyrir Eflingu, að þær tölur stað­
festa þetta.
Ljóst er að samkvæmt könnuninni
sem Maskína gerði fyrir Eflingu þurfa
fyrirtæki að bæta sig talsvert þegar
kemur að svörum við atvinnuumsókn­
um. Næstum helmingur atvinnuleit­
enda svarar því til að hann fái aldrei
eða næstum aldrei svör frá atvinnu­
rekendum vegna starfs sem sótt var
um.
Það er virðingarleysi að svara ekki
fyrirspurnum og umsóknum og ætti
að vera lítið mál að framkvæma, til
dæmis væri hægt að birta á heimasíðu
fyrirtækis að búið væri að ganga frá
ráðningu í viðkomandi starf. Það er
því ljóst að atvinnurekendur þurfa að
taka sig á í þessu efni.
Hugaðu að
þínum rétti!
Það er á þína ábyrgð að fylgjast
með greiðslum í lífeyrissjóð og
stéttarfélagsgjöld.
Hafðu samband við félagið og
kannaðu hvort verið sé að
greiða gjöldin þín.