40
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Sagan
Dagsbrúnar-
sagan
komin út
Nú er 2. bindi sögunar, Dagar vinnu og
vona:
Saga Verkamannafélagsins Dags­
brúnar í kreppu og köldu stríði
,
komið
út. Þetta verk er sjálfstætt framhald af
bókinni Við brún nýs dags sem kom út
árið 2007, og líkt og þar eru hér fetaðar
nýjar brautir í íslenskri samtímasögu.
Hvorki er um hefðbundna félagssögu
að ræða né strípaða fræðileg greiningu.
Hún er enn síður saga af hetjum og
fórnarlömbum, segir Þorleifur Friðriks­
son sem er afar stoltur af þessu verki en
fyrstu eintökin komu til trúnaðarráðs­
fundar Eflingar á jólafundi ráðsins sem
var mikill heiður fyrir Eflingu-stéttar­
félag.
Nýja bindið stendur sannarlega undir
væntingum. Þorleifur kynnti bókina á fyrr-
greindum trúnaðarráðsfundi á dögunum og
var henni tekið forkunnar vel. Hann brá upp
myndum úr myndasafni Karls Christians
Nielsens en myndirnar úr daglegu lífi þessa
tíma bregða mjög skemmtilegu og fróðlegu
ljósi á söguefnið. Þorleifi tókst með aðstoð
myndmálsins og tilvísana í söguna að færa
söguna á fjórða og fimmta áratugnum nær
fundarmönnum. Það er ekki alltaf auðvelt að
feta sig um umhverfi og hugmyndaheim og
tíðaranda þessa tímabils en ég vona að það
hafi tekist, segir Þorleifur og bætir við að með
þessum hluta sögunnar vonist hann til að
dýpka þannig jafnframt skilning okkar á því
sem einu sinni var fyrir meira en hálfri öld.
Sögunni vel tekið
á jólafundi trúnaðarráðsins