Viðtalið
41
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Geðrækt
Lögmenn Eflingar-stéttarfélags eru til viðtals á skrifstofu félagsins
á þriðjudögum milli kl. 13.00 og 16.00. Það eru lögmennirnir Karl
Ó. Karlsson og Anna Lilja Sigurðardóttir frá lögmannsstofunni LAG
lögmenn sem eru til aðstoðar. Ekki þarf að panta tíma fyrirfram. Það
nægir að mæta á skrifstofuna á þessum tíma.
Ekki þarf að panta tíma hjá lögmönnum Eflingar
Skrifstofa Eflingar
Anna Lilja Sigurðardóttir
Karl Ó. Karlsson
Þekkingarfyrirtæki
í málmiðnaði og
véltækni
Sími 569 2100 • hedinn.is
Héðinshúsið, Gjáhellu 4, Hafnarfirði
Það er engin heilsa án geðheilsu
GEÐORÐIN 10
1.
Hugsaðu jákvætt, það er léttara.
2.
Hlúðu að því sem þér þykir vænt um.
3.
Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir.
4.
Lærðu af mistökum þínum.
5.
Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina.
6.
Flæktu ekki líf þitt að óþörfu.
7.
Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig.
8.
Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup.
9.
Finndu og ræktaðu hæfileika þína.
10.
Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast.
Lýðheilsustöð · Laugavegi 116 · 101 Reykjavík
Með því að tileinka þér að hugsa
jákvætt um lífið og tilveruna og
hlúa markvisst að því sem styrkir
geðheilsu þá ertu að stunda geðrækt.
HUGSANIR OG TILFINNINGAR
Beint samband er á milli hugsana og hvernig
okkur líður.
Það er hægt að hafa áhrif á eigin
hugsanir og líðan með því að einbeita sér að því
sem veldur vellíðan, hlutum sem tengjast góðum
minningum, myndum sem gleðja okkur og tónlist
sem okkur finnst gott að hlusta á.
GEÐRÆKTARKASSI
Safnaðu hlutum í kassa sem vekja hjá þér gleði
og góðar minningar og notaðu meðvitað til að
láta þér líða vel.
GUTENBERG 26322