42
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
VIRK
Reynslusaga um að ná sér eftir veikindi
Það var ekki fyrr en ég hitti Karen
ráðgjafa sem ég fékk svör við öllum
mínum spurningum um hvað tæki við
þegar ég færi af launum vegna veikinda.
Ég var búin að fara víða en mér fannst
ég hvergi fá nógu greinargóð svör. Ég
var alveg ráðþrota og auk þess full af
áhyggjum yfir því að fá kannski ekki
aftur vinnu. Karen leiddi mig í gegnum
þetta allt og ég fylltist sjálfstrausti á
ný. Ég fann betur fyrir því að ég væri
einhvers virði og að allt væri ekki búið,
segir Sólveig Sigurjónsdóttir.
Sólveig, sem er 65 ára, er nú komin til
starfa á ný eftir eins og hálfs árs veik
indaleyfi. Veikindin höfðu reyndar hrjáð
hana löngu áður en hún hætti að vinna.
Ofsalega þjáð
Ég hafði unnið við aðhlynningu alla mína
starfsævi þar til ég ákvað að breyta til fyrir
nokkrum árum og gerðist skólaliði í Folda-
skóla. Ég uppgötvaði það ekki fyrr en ég
var byrjuð að vinna þar að það var búið að
sameina gangavörslu og ræstingar í eitt starf.
Það var endalaust bætt við ræstingarnar og
ég gat þetta ekki og sagði upp eftir að hafa
unnið þarna í einn vetur. Næsta vetur fór ég
að vinna sem skólaliði í Rimaskóla en þar var
líka verið að bæta við ræstingarnar. Ég þoldi
þær ekki vegna veikindanna og gafst á endan-
um upp eftir sjö mánuði. Þegar ég fór að
ræsta gúlpaðist nefnilega upp úr maganum
á mér og upp í lungu og þessu fylgdi mikill
sársauki.
Að sögn Sólveigar voru læknar lengi að
komast að því hvað amaði að henni. ,,Þeir
greindu mig fyrst sem lungnasjúkling og létu
mig á stera. Ég hélt því stöðugt fram að ég
væri ekki lungnaveik, heldur væri eitthvað
að maganum. Það kom svo loks í ljós að um
bakflæði var að ræða og magasár. Ég var búin
að vera ofsalega þjáð og þegar svona gerist þá
verður maður að hætta að vinna.“
Mikið áfall
Sólveig segir það hafa verið mikið áfall að
standa allt í einu frammi fyrir því að hafa
enga vinnu og vita ekkert hvað væri fram-
undan. ,,Maður fer strax að hafa áhyggjur
af framtíðinni þegar maður veikist því að
það lifir enginn á loftinu. Sem betur fer sá
ég af tilviljun auglýsingu um Starfsendur-
hæfingarsjóð í Fréttablaðinu. Ég hringdi og
spurði hvort hægt væri að fá aðstoð og fékk
tíma hjá Karen Björnsdóttur, ráðgjafa á sviði
starfsendurhæfingar hjá BSRB, fljótlega eftir
að ég var komin í veikindaleyfi. Karen sótti
um allt fyrir mig sem ég átti rétt á þegar ég
fór af launaskrá og fór í gegnum það allt með
mér ásamt læknunum mínum. Það fylgdi því
mikil öryggiskennd að njóta aðstoðar hennar
við þessar umsóknir. Ég veit ekki hvernig ég
hefði annars farið að því að ég var algjörlega
ókunnug öllu þessi kerfi.
Fékk bata og nýtt starf
Það var svo í desember síðastliðnum sem
Sólveig fór loks í aðgerð vegna bakflæðisins.
„
Ég gerði síðan sjálf allt sem ég gat til þess
að ná mér eftir veikindin. Ég hef alltaf verið
mikil útivistarmanneskja og hef farið út
að ganga á hverjum degi í fjölda ára. Eftir
aðgerðina hélt ég gönguferðunum áfram til
þess að missa ekki alveg þróttinn. Nú í haust
var ég komin það vel á veg að ég treysti mér
til þess að fara að vinna á ný. Ég spurði fyrr-
verandi vinnuveitanda minn hjá Eir hvort
hún vildi mig aftur í aðhlynningarstörf og hún
hélt það nú.“
Sólveig kveðst ætla að láta samstarfsmenn
sína vita af aðstoðinni sem hægt er að fá
hjá Starfsendurhæfingarsjóði. ,Ég á eftir að
ráðleggja öðrum sem veikjast að notfæra sér
þessa frábæru þjónustu. Ég held að því miður
viti ekki margir af þessu. Ég gat og get enn
alltaf leitað til Karenar sem vill allt fyrir mig
gera. Hún vill fylgjast með mér áfram og það
er gott að geta treyst henni fyrir öllu.
Fylltist sjálfstrausti á ný
Sólveig Sigurjónsdóttir
„
Karen sótti um allt fyrir mig sem ég átti
rétt á þegar ég fór af launaskrá og fór í
gegnum það allt með mér ásamt lækn-
unum mínum. Það fylgdi því mikil öryggis-
kennd að njóta aðstoðar hennar við þessar
umsóknir. Ég veit ekki hvernig ég hefði
annars farið að því að ég var algjörlega
ókunnug öllu þessi kerfi.
Ég gat og get enn alltaf leitað til Karenar
sem vill allt fyrir mig gera. Hún vill fylgjast
með mér áfram og það er gott að geta treyst
henni fyrir öllu.“