Viðtalið
9
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Skattsvik
Efnið er byggt á skýrslunni Leggðu þitt af mörkum, Átaksverkefni RSK, ASÍ og SA og grein Jóhanns G. Ásgrímssonar hjá RSK gegn svartri atvinnustarfsemi sem birtist í
Eflingarblaðinu á síðasta ári.
Einföld lagabreyting
getur haft mikil áhrif
Skattaeftirlitið stendur oft frammi
fyrir því að sannanir liggja fyrir um
fullframin brot á skattalögum og
-
reglum, en virkari úrræði skortir
til að stöðva eða taka á slíkum
brotum. Þetta eru brot sem kosta
þjóðfélagið tugi milljarða króna á
hverju ári. Átaksverkefni RSK, ASÍ
og SA á síðasta ári leiddi í ljós að
tap sem afleiðing af svartri vinnu
kostar þjóðfélagið um 15 milljarða
króna á ári. Á mánuði samsvarar það
um 1,3 milljarði króna eða allt að
60
milljónum á dag miðað við 250
virka vinnudaga. Af þessum tölum
sést hve mikið er í húfi. Þetta við
gengst á meðan tækifæri og ávinn
ingur eru til staðar til að stunda
þessi brot. Lausn þessa máls felst
einmitt í því að koma í veg fyrir að
það sé ávinningur af því að brjóta
lög. En af hverju er það ekki gert?
Skilvirkasta og raunhæfasta leiðin sem
virkar til að stöðva þau skattalagabrot
sem hér er lýst, er að beita áminningum,
sektum ef áminningum er ekki sinnt og
jafnvel rekstrarstöðvun ef ekki er látið af
alvarlegri síendurteknum brotum á form-
reglum skattalaganna er varða skil á sam-
tímagjöldum. Með einfaldri lagabreyt-
ingu er hægt að virkja þessi úrræði, sem
yrði sennilega arðsamasta lagsetning sem
sögur færu af í langan tíma. Það kann
einhverjum að finnast þetta harkalegt.
Er það samt ekki enn harkalegra að láta
það viðgangast að samfélagið tapi tugum
milljarða á ári vegna þess að ekki er farið
að lögum? Á meðan svo er velta þeir sem
brotin fremja sínum samfélagskostnaði
yfir á skilvísa skattgreiðendur, en þeir
vilja samt njóta sömu samfélagsþjónustu
og aðrir.
Við skulum nú fara yfir tölur um hvað
núverandi ástand kostar launafólk lands-
ins. Talið er að glötuð gjöld og greiðslur
sem annars myndu falla launafólki í
skaut með beinum eða óbeinum hætti
nemi um 7,8 milljörðum á ári. Um 5,8
milljarðar (74,3%) skila sér ekki í bein-
hörðum peningum í félagslegt trygg-
ingakerfi launafólks. Tæpir 2 milljarðar
(25,7%),
eru glötuð orlofsréttindi sem
væntanlega hafa ekki og munu ekki
verða greidd. Þannig má sjá að gróft
metið kosta skattsvikin þjóðfélagið um
15
milljarða á ári.
Í þjóðfélagi þar sem illa gengur að fjár-
magna samneysluna, ætti að vera ríkur
vilji til að leiðrétta það óréttlæti sem felst
í því að hópur þegnanna hefur ákveðið að
virða ekki einfaldar leikreglur samfélags-
ins. Það hlýtur að teljast mikið jafnréttis-
og mikilvægt siðferðismál að sporna
gegn þeirri mismunun sem viðgengst og
tengist svartri atvinnu. Með leiðréttingu
á þeirri mismunun geta bæði samtök
launafólks og atvinnurekenda sótt mikil-
vægar kjarabætur.
15
milljarðar á ári er tap þjóðfélagsins vegna svartrar vinnu!!
Með einfaldri lagabreytingu er hægt
að virkja þessi úrræði, sem yrði
sennilega arðsamasta lagasetning
sem sögur færu af í langan tíma
Ljósm. Þorfinnur Sigurgeirsson