Page 10 - Fréttablað Eflingar - sept 2012

Basic HTML Version

What support do I have from the union?
Efling pays part of your education
10
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Nám
Greiðir hluta námskostnaðar
Efling styður þig til náms
Eflingarfélagar geta sótt um endur­
greiðslu kostnaðar hjá fræðslusjóðum
félagsins á námi og námskeiðum sem
þeir sækja. Reglur starfsmenntasjóða
Eflingar gera ráð fyrir að umsækjandi
hafi verið í félaginu í 6 mánuði þegar
sótt er um styrk og nám hefst en greitt
er hlutfallslega ef um hlutastörf er að
ræða. Ef um fólk í atvinnuleit er að
ræða er mjög mikilvægt að leitað sé allra
upplýsinga og sótt um aðstoð ef á þarf
að halda.
Styrkir til einstakra félagsmanna vegna
starfsnáms geta numið allt að 60.000,- kr.
á ári. Almennt er þó ekki greitt meira en
sem nemur 75% af kostnaði við viðkomandi
námskeið. Starfsnám getur til dæmis verið
nám í öldungadeildum framhaldsskóla, tölvu-
skólum og tungumálaskólum. Tómstunda-
nám er styrkt að hámarki 18.000,- eða 50%
af verði námskeiða. Tómstundanám getur til
dæmis verið matreiðsla, fluguhnýtingar og
postulínsmálun.
Til þess að sækja um styrk þarf að fylla út
umsóknareyðublað sem hægt er að nálgast
á skrifstofu Eflingar og á heimasíðunni
www.efling.is
, skila inn frumriti reiknings/
greiðslukvittunar fyrir greiðslu á námskeiði
fyrir 20. hvers mánaðar. Styrkir eru greiddir
út mánaðarlega.
Members of Efling Union can apply
for educational grants. The main rules
of the educational funds of Efling state
that those applying for a refund must
have been members of the union for a 6
month period before applying and starting
the course. Grants to those in part-time
employment are proportional. The amount
of any grant offered to an individual for
vocational education they choose them-
selves is maximum 60.000,- kr. a year. The
main rule is that the total amount paid by
Efling covers maximum 75% of the cost of
the course. In case of hobby courses the
amount paid by Efling is 18.000,- kr. or
maximum 50% of the cost. For those who
are unemployed it is important to seek all
information about courses and education
offered by Efling and possible support of
the union.
In order to apply for a refund from the
union applicants must fill out a special
form, available at the union office and on
the union website www.efling.is. Applic-
ants must also present receipt(s) for
payment for the course. Grants are paid
every month.
Ljósm. Þorfinnur Sigurgeirsson