Viðtalið
9
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Nám
Anney Þórunn Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri
hjá Mími, segir að það hafi legið beint við
þegar ákveðið var að byggja upp þjónustu við
heyrnarlausa að nýta starfskrafta hennar þar
sem hún hafði áður unnið hjá Samskiptamið-
stöð heyrnarlausra og þekki því samfélag þeirra
vel. Hún gat því horft á starfið með það fyrir
augum hvernig hægt væri að koma til móts
við heyrnarlausa og skapa þeim vettvang til
mennta, segir hún. Það voru margir aðilar sem
komu að mótun námsins, t.d. sérfræðingar
hjá Samskiptamiðstöðinni og var lagt upp úr
samvinnu við heyrnarlausa og þá sem þekkja
til samfélags heyrnarlausra. Mikil vinna liggur
að baki þróunar á námsefninu. Stór hluti þess
er á táknmáli sem m.a. var tekið upp á mynd-
band. Námið var síðan allan tímann í mótun
með fyrsta námshópnum og við erum að fikra
okkur áfram og finna hvernig best er að haga
hlutunum, segir Anney.
Að skapa vettvang til mennta
Um Döff menntaskólann
Döff menntaskólinn er samstarfsverkefni
Eflingar-stéttarfélags, Mímis-símennt-
unar, Félags heyrnarlausra og Samskipta-
miðstöðvar heyrnarlausra og heyrnar-
skertra. Þróunarsjóður framhaldsfræðslu
veitti styrk til verkefnisins sem hófst á
síðastliðnum vetri og heldur áfram í
haust.
Með Döff menntaskólanum fékk Elsa
Björg Stefánsdóttir í fyrsta sinn almennilegt
tækifæri til að mennta sig. Í æsku var hún
í Heyrnleysingjaskólanum. Þar máttum við
ekki nota táknmál til að tjá okkur, segir hún.
Elsa Björg gafst þó ekki upp á menntun og
fór í Húsmæðraskólann á Hallormsstað en
þá var ekki í boði nein túlkaþjónusta og því
reyndist námið henni erfitt. Ég stóð mig vel
í öllu verklegu og náði því öllu en enginn í
skólanum kunni táknmál og því var mjög
erfitt fyrir mig að læra bóklegu greinarnar.
Elsa Björg er spenntust fyrir náminu í tungu-
málunum, íslensku og ensku. Hún segir
mikið af fréttatengdu efni á ensku og því sé
gott að kunna hana en hún notar tölvur til
þess að fylgjast með fréttum og því sem er
að gerast hverju sinni. Með aukinni tækni
hafi aðgengi að ýmsu efni stórbæst í gegnum
tíðina. Þegar ég var ung voru ekki til farsímar
en nú er hægt að nota tölvur í margt, það þarf
samt að bæta allt aðgengi heyrnarlausra að
fjölmiðlaefni, t.d. get ég ekki horft á Silfur
Egils þó ég hafi áhuga á því, segir hún.
Opnar möguleikann á frekara námi
Elsa Björg Stefánsdóttir, nemandi í Döffmenntaskólanum
Anney Þórunn Þorvaldsdóttir,
verkefnastjóri hjá Mími