8
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Nám
- segir Laila M. Arnþórsdóttir hjá Félagi heyrnarlausra
Döff menntaskólinn var haldinn í fyrsta sinn á síðastliðnum
vetri og má segja að með skólanum hafi verið brotið blað í sögu
og þróun menntunar heyrnarlausra og daufblindra hér á landi.
Eflingarblaðið rifjar hér upp nokkur ummæli um skólann til að
vekja athygli á þessu merka menntastarfi sem heldur áfram á
vegum Mímis en Döff menntaskólinn verður örugglega í fram
tíðinni eitt af þeim verkefnum sem litið verður til með miklu
stolti yfir þeim áföngum sem náðust með þessu námi.
Hvað segja þau um Döff menntaskólann?
Döff menntaskólinn er sérstakur að því
leytinu til að þetta er fyrsta námið hjá Mími
og á Íslandi sem er byggt upp frá grunni
með hagsmuni heyrnarlausra að leiðarljósi.
Þó svo að heyrnarlausir hafi áður haft tæki-
færi til að fara í nám var það á allt öðrum
forsendum. Í Döff menntaskólanum er
hverjum og einum mætt á þeim stað sem
hann er, segir Laila M. Arnþórsdóttir hjá
Félagi heyrnarlausra. Hún segir heyrnar-
lausa ekki hafa átt kost á sömu grunn-
menntun og aðrir heyrandi og það sé erfitt
fyrir þá að koma inn í nám þar sem ekki er
tekið tillit til grunns þeirra eða sérstöðu. Hér
hafi Döff menntaskólinn komið inn með
alveg nýtt sjónarhorn þar sem táknmálið sé
lykillinn að menningarheimi heyrnarlausra
og tækifærið til að vera hluti af hópi sé nú
fyrir hendi meðal heyrnarlausra. Þau eru
ekki lengur heyrnarlausu nemendurnir úti í
horni. Það er gaman að sjá þessar framfarir
í baráttunni sem koma með Döff mennta-
skólanum, segir Laila.
Tækifæri til að vera hluti af hópi