Page 18 - Fréttablað Eflingar - sept 2012

Basic HTML Version

18
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Leikskólastarf
Við fengum alls staðar frábærar
móttökur og mér fannst allir svo
hjálpsamir og góðir
Pólland er allt öðruvísi en við bjugg­
umst við segja þeir Viktor Richards­son
og Birkir Guðjón Sveinsson Eflingar­
félagar en þeir voru á meðal starfs­
manna leikskólans Óss sem fóru í
kynnisferð til Varsjár í Póllandi í sumar.
Tilgangur ferðarinnar var að kynna sér
þarlent leikskólastarf ásamt landi og
þjóð og þjappa starfsmannahópnum
saman. Allir voru sammála um að ferðin
hafi heppnast einstaklega vel og Pólland
hafi komið skemmtilega á óvart.
Ég hafði ákveðnar hugmyndir um Pólland
áður en ég fór út en í raun vissi ég lítið um
landið, segir Viktor. Það hafi verið áhugavert
að kynnast sögu Varsjár og sjá pólska menn-
ingu. Varsjá er hrein og falleg borg. Pólverjar
hafi birst honum sem afskaplega vinalegt
og hjálpsamt fólk og tekur Birkir undir það.
Þeir eru báðir sammála um það að ferðin
hafi verið mjög jákvæð í alla staði.
Aðspurðir hvernig það hafi komið til að
fara til Póllands, segja þeir að starfsmenn-
irnir hafi verið búnir að ákveða fyrir nokkru
að fara saman í ferð til útlanda og nokkur
lönd hafi verið nefnd í því samhengi. Ég
man nú ekki hvort að Pólland var þar á
meðal, en kokkurinn hjá okkur, Miroslaw
Luczynski, er pólskur og hann var á leiðinni
til Póllands í sumar og við ákváðum bara
að fylgja honum út, segir Birkir. Þeir segja
báðir að það hafi verið frábært að hafa hann
með í ferðinni. Það hafi auðveldað þeim allt.
Miroslaw eða Mirek eins og hann er kall-
aður vissi hvar ódýrast væri að versla, hvaða
strætóa átti að taka og hvert átti að fara. Eins
var það þægilegt á veitingastöðum þar sem
fáir töluðu ensku, segir Birkir og bætir við
að hann hafi einnig verið ómetanlegur þegar
kom að skipulagningu ferðarinnar. Ekki má
heldur gleyma því að hann fór á námskeið til
að geta túlkað betur, bætir Viktor við.
Pólland kom skemmtilega á óvart
Leikskólinn Ós kynnti sér leikskólastarf í Varsjá
Gátum notið augnabliksins í botn
Þrír leikskólar sóttir heim
Í ferðinni voru heimsóttir þrír leikskólar,
Waldorf skóli, sérskóli fyrir fötluð börn
á aldrinum 3-18 ára og einn einkarekinn
listaskóli. Við fengum alls staðar frábærar
móttökur og mér fannst allir svo hjálpsamir
og góðir segir Viktor. Það var gaman að
geta kynnst öðru en maður er vanur t.d. er
viðverutími barnanna mun styttri í Póllandi
en á Íslandi, segir Birkir en að mörgu leyti
hafi leikskólastarfið verið svipað því sem
þekkist á Íslandi. Það var helst á Waldorf
leikskólanum og sérskólanum sem starfið
var frábrugðnara. Margt megi læra af heim-
sókninni eins og nægjusemi og útsjónarsemi
sem starfsfólkið úti sýndi sem býr oft við
lítið fjármagn til skólastarfsins. Eins megi
virkja hugmyndaflugið og nota það betur
í leikskólastarfinum eins og sást best í
Waldorf leikskólanum.
Hópurinn dvaldi í rúma viku í Póllandi og
bjó í tveimur íbúðum í gamla hluta borgar-
innar. Það hafi verið bæði ódýrara og betra
að vera í íbúðum en á hóteli, segir Birkir.
Birkir og Viktor lengst til vinstri með hluta af hópnum