Viðtalið
19
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Leikskólastarf
Trúnaðarmenn Eflingar
Trúnaðarmenn Eflingar eru einn
mikilvægasti hlekkurinn í starfi
Eflingar. Það reynir oft á trúnaðar
menn í starfi og þess vegna hefur
félagið ávallt kappkostað að bjóða
þeim uppá fyrsta flokks fræðslu.
Trúnaðarmenn eiga samningsbundinn
rétt til að sækja þessi námskeið án
launaskerðingar en þurfa að sjálf
sögðu að sækja námskeiðin í samráði
við yfirmann sinn.
Námskeið haustið 2012
Trúnaðarmannanámskeið I
Trúnaðarmannanámskeið I, 1. og 2. þrep verður haldið
1.–5. okt
. mán.-föst. kl. 9:00-15:30. Á þessu námskeiði er farið í starf og hlut-
verk trúnaðarmannsins samkvæmt lögum og samningum ásamt því sem farið er í starfsemi stéttarfélaga, hlutverk þeirra og viðfangsefni.
Trúnaðarmannanámskeið I NÝTT
Til þess að koma til móts við þá sem vinna nánast einungis seinni part dags eða um helgar er ákveðið að halda námskeið seinni part
dags. Sérstaklega er verið að horfa til þeirra sem vinna á veitingastöðum eða við ræstingar.
1. þrep haldið 8.-12. okt. mán.-föst. kl. 15:00-19:00
2. þrep haldið 22.-24. okt. mán.-miðvd. kl. 15:00-19:00
Trúnaðarmannanámskeið II
Trúnaðarmannanámskeið II, 3. og 4. þrep verður haldið 29. okt.–2. nóv., mán.-föst. kl. 9:00-15:30. Á þessu námskeiði er farið dýpra í
starf verkalýðshreyfingarinnar ásamt því sem hagfræðihugtök eru skýrð og farið nánar í almennan vinnurétt og samskipti á vinnustað.
Allar nánari upplýsingar um tímasetningar og skráningu er hægt að nálgast í miðopnu blaðsins eða á skrifstofu Eflingar
í síma 510-7500.
Við vorum með góða aðstöðu þar sem við
gátum verið öll saman og farið yfir það sem
við upplifðum yfir daginn. Ekki skemmdi
heldur fyrir hvað gamli borgarhlutinn var
fallegur. Það þurfti að byggja upp megnið
af borginni eftir stríð og þá var ákveðið að
halda í gamlan stíl, segir Birkir og Viktor
skýtur inn í að arkitektar hafi safnað göml-
um teikningum sem notaðar voru í endur-
uppbyggingunni. Sérskólinn eyðilagðist t.d.
í stríðinu og þurftu kennarar og foreldrar að
endurbyggja skólann.
Afslappaðir starfsmenn
Skemmtilegast við ferðina, segir Birkir að
það hafi verið hversu afslappaðir starfs-
menn voru. Það var nægur tími og við
þurftum aldrei að flýta okkur og gátum því
notið augnabliksins í botn. Viktor segir að
sér hafi fundist skemmtilegast að kynn-
ast hinum starfsmönnunum enda sé hann
frekar nýbyrjaður og ferðin því kjörið tæki-
færi fyrir hann til að tengjast hópnum. Svo
hafi sumt komið skemmtilega á óvart. Það
var margt aldrað fólk í þjónustustörfum og í
garðyrkjustörfum svona svipað og unglinga-
vinnan sinnir. Þetta sér maður ekki heima á
Íslandi, segir Viktor.
Mirek lengst til hægra að túlka