F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
24
Eins og undanfarin ár er mikil aðsókn í orlofshús Eflingar og voru öll húsin okkar fullnýtt í sumar.
Bókanir eru hafnar hér á skrifstofunni og nú fer hver að verða síðastur að bóka draumahúsið.
Erum að bóka 6 mánuði fram í tímann. Nú er um að gera að setjast niður, velja helgi og bóka !
Síminn á skrifstofunni er 510 7500
Tímabil vetrarleigu á orlofshúsum / íbúðum
er frá
31. ágúst 2012
til
31. maí 2013
. Páskar eru undan-
skildir þar sem úthlutað er sérstaklega um páska og verður það auglýst síðar. Bókað er sex mánuði fram í tímann.
Helgarleiga
miðast við fimmtudag til sunnudags eða föstudag til mánudags, 3 nætur.
Punktafrádrag
er ekkert fyrir félagsmenn í vetrarleigu.
Hvernig leigi ég orlofshús!
Þú hringir í síma
510 7500
eða kemur við hjá okkur á skrifstofu félagsins að
Sætúni 1
.
Illugastaðir og Einarsstaðir.
Hús á þessum stöðum eru leigð beint af rekstrarfélögunum á staðnum.
Sími á Einarsstöðum er 861 8310 og sími á Illugastöðum er 462 6199.
Önnur orlofshús og íbúðir eru bókaðar í síma 510 7500 á skrifstofu Eflingar.
Raðhús á Blöndósi er hægt að bóka hjá Gísla í síma 897 0731.
Orlofshús
Vetrarleigan komin á fullt!
Ekki gleyma að bóka vetrardvölina
Ljósm. Þorfinnur Sigurgeirsson