Page 25 - Fréttablað Eflingar - sept 2012

Basic HTML Version

Viðtalið
25
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Sumarferð
Eins og þessi fallega mynd ber með
sér var ekki ský á himni þegar ferða­
langar Eflingar fóru í sumarferð félags­
ins 12.-15. júlí en hún er tekin þegar
hópurinn skoðaði hinn óviðjafnanlega
Hvítserk sem er klettadrangur við
innanverðan Húnafjörð. Það voru
þær Fanney Friðriksdóttir og Þuríður
Ingimundardóttir sem héldu utan um
hópinn í þessari ferð en Anna Soffía sá
að vanda um góða fararstjórn á leiðinni
og var mikil ánægja með ferðina.
Vatneshringurinn er alltaf vinsæll og hópur-
inn gaf sér góðan tíma, skoðaði Selasafnið á
Hvammstanga, fjöruna við Svalbarð og hinn
óviðjafnanlega Hvítserk sem líkt hefur verið
við þríhöfða ófreskju með höfuðið niður í
sæinn. Ótrúlegur dagur þar sem veðrið lék
við okkur og sjaldan hefur fólk séð aðra eins
sýn þegar Borðeyri speglast í Húnaflóanum.
Gist var á Hólum í Hjaltadal allar næturnar.
Á föstudeginum var síðan haldið í Vestur-
fararsafnið á Hofsósi. En einn af hápunkt-
um ferðarinnar var heimsókn í síldarbæinn
Siglufjörð þar sem lifandi sýning á síldar-
planinu mun lengi lifa í minningunni því
heimamenn fóru þar sannarlega á kostum
í síldarsöltun fyrri tíma með tilheyrandi
söngvum og dansi. Þarna yngdust allir
félagsmenn upp um fjölda ára á nokkrum
mínútum! Ógleymanleg sýning.
Veðrið lék við okkur allan tímann
Ekið var í gegnum nýju Héðinsfjarðargöngin,
komið við á Hjalteyri og síðan inn á Akureyri
þar sem fólk naut þess að vera í eigin tíma
áður en við fengum okkur dýrindis kvöldmat
á Bautanum.
Á laugardeginum var síðan tekin stefnan á
Skagafjörðinn, farið niður að Kolkuós þar
sem áður var byggð þeirra Hólamanna en
þar vinna nú fornleifafræðingar í kapp við
tímann og mikið sjávarrof að ná að varðveita
sem mest af menningarminjum frá ýmsum
Sumarferð Eflingar
- sagði Fanney Friðriksdóttir
tímaskeiðum þjóðarinnar áður en þær fara
undir sjávarmál.
Farið var um Reykjadisk en þar er m.a. að
finna Grettislaug, síðan haldið í Glaumbæ
og Víðimýrarkirkju. Síðan haldið aftur heim
að Hólum þar sem sögu Hóla voru gerð góð
skil með dyggri leiðsögn heimamanns.
Á sunnudag var síðan haldið heim á leið og
komið við í Þingeyrarkirkju og Borgarvirki.
Það var hver stund öðrum dýrmætari í þessari
ferð og gott að njóta leiðsagnar bæði Önnu
Soffíu og heimamanna og einnig viljum við
þakka bílstjóranum okkar fyrir einstaklega
þægilega ferð, sagði Fanney að lokum.
Þarna yngdust allir félagsmenn upp
um fjölda ára á nokkrum mínútum!
Dansinn dunar á Siglufirði eins og Siglfirðingum einum var lagið á síldarplönunum forðum
Ljósm. Þorfinnur Sigurgeirsson