Dvölin hér meiriháttar
- segir Ásta Skaftadóttir
Við erum í sumarleyfi og leigðum þetta hús
hjá Eflingu og fengum eitt af þremur nýjum
húsum sem tekin voru í notkun nýlega í
Brekkuskógi, sagði Ásta Skaftadóttir sem
vinnur á saumastofu hjá Sjóklæðagerðinni
66° norður í Miðhrauni á Hafnarfirði. Við
komum hingað á föstudagskvöldi og dvölin
hér hefur verið meiriháttar. Það var spáð
leiðinda veðri og það rigndi duglega og ég
verð að játa að ég beið eftir rigningu með
mikilli eftirvæntingu. Vegna þess að frjókorn
hafa gert mér lífið leitt í sumar, segir hún.
En það hefur verið heitt í veðri og dúnalogn
á kvöldin og við erum dugleg að fara í heita
pottinn og förum seint að sofa,segir hún.
Aðspurð um aðbúnað í húsinu og umhverfi,
segir Ásta að hvorutveggja sé til fyrirmyndrar
og rúmin séu æðisleg. En það mætti athuga
að hafa svæði hérna með rólu, vegasalti,
klifurgrind og körfuboltaspjald. Við eigum
sjö barnabörn sem hafa gist hjá okkur í
bústöðum og ég veit að þau mundu fagna
því að hafa aðgang, þó ekki væri nema að
rólum. Mér finnst að Efling geti verið stolt
af þessum bústaði og þegar dvölinni hér
lýkur förum við kannski í silungsveiði, sagði
Ásta og brosti.
Heimsókn í Brekkuskóg
Orlofsmál
26
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Ólöf Björk Björnsdóttir kveður Eflingu
Breytingar í starfsmannahópi Eflingar-stéttarfélags
Ólöf Björk Björnsdóttir hefur látið af störfum
hjá Eflingu-stéttarfélagi en hún hefur unnið
samfleytt hjá félaginu frá því í desember 2004.
Ólöf hefur sinnt fjölmörgum störfum fyrir
Eflingu á þessum tíma, bæði við kjaramáladeild
og unnið við aðstoð og prófarkalestur við Félags-
blað Eflingar en félagsmenn þekkja hana eflaust
best af meginverkefninu sem hefur verið að sinna
orlofs- og ferðamálum Eflingar. Þegar Ólöf kveður
Eflingu þakkar félagið henni gott og árangursríkt
samstarf og árnar henni allra heilla á nýju starfs-
sviði en hún hefur nú ákveðið að snúa sér alfarið
að innflutningi og verslunarstörfum.
Guðný Katrín Einarsdóttir
lætur af störfum starfsendurhæfingarráðgjafa
Guðný Katrín Einarsdóttir hefur látið af störfum
hjá Eflingu en hún var ráðin sem starfsendur-
hæfingarráðgjafi Eflingar í mars 2010. Guðný var
annar starfsendurhæfingarráðgjafinn sem Efling
réði til starfa eftir að starfsendurhæfing hófst sem
formleg starfsemi hjá Eflingu árið 2009. Guðný
Katrín er að söðla um í lífi sínu en hingað til
hefur hún starfað við heilsutengd störf, lengst af
í sínu fagi iðjuþjálfun. Hún hefur tekið ákvörðun
um að hefja nám á nýju sviði, textíl eða mynd-
vefnaði og óskar Efling henni velfarnaðar á nýjum
vettvangi um leið og henni eru þökkuð vandasöm
störf við að byggja upp starfsendurhæfingu hjá
Eflingu.