Viðtalið
27
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Sumarfríið
Að vinna á farfuglaheimili á Ströndum
Þegar halla tekur sumri förum við
einmitt að meta sumarið og flestir hafa
eflaust mjög jákvæðar tilfinningar til
þess sumars sem nú er senn á enda með
sína miklu veðurblíðu og einmuna tíð.
Tíðindamaður Eflingablaðsins fór á
Hvernig hafðir þú það í sumarleyfinu?
- segir Gunnar Snorri Árnason
Á þungarokkshátíð í fimmta sinn
stúfana og heimsótti nokkra vinnustaði
og spurningin var einmitt þessi. Hvað
gerðir þú í sumarleyfinu?
Ég fór á Eistnaflug á Neskaupsstað sem er þungarokkshátíð, segir Gunnar Snorri Árnason
hjá Garðlist. Það er alltaf gaman þar enda í fimmta sinn sem ég fer. Frábær tónlist og góð
stemmning. Aðspurður um uppáhaldshljómsveitir, segir hann þær vera I Adapt, Celestine og
Cephalic Carnage.
Gísli Gunnar Didriksen Guðmundsson
Snilld á Hróarskeldu og Tálknafjöri
Ég fór á Hróarskeldu í Danmörku. Það var algjör snilld eins og alltaf, segir Gísli Gunnar
Didriksen Guðmundsson en hann hefur farið tvisvar áður. Ég fór líka á Tálknafjörð á útihátíð
sem heitir Tálknafjör. Ég er hluti af spunahóp sem heitir SÍSÍ og við fengum inn á dagskránni
fyrir tilstilli eins stráks í hópnum sem er þaðan.
- segir Ingunn Björnsdóttir, hjá Olís Gullinbrú
Skemmtilegasta sem ég hef gert um ævina
Ég ferðaðist um landið og fór einnig í sumarbústaði, segir Ingunn Björnsdóttir hjá Olís Gull-
inbrú. Ég fékk líka ágætis tilbreytingu og vann á farfuglaheimili á Ströndunum. Það er eitt af
því skemmtilegasta sem ég hef gert um ævina, það er svo gaman að taka á móti ferðamönnum
því þeir eru allir mjög jákvæðir.