Page 28 - Fréttablað Eflingar - sept 2012

Basic HTML Version

28
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Vinnustaðaheimsókn
Efnamóttakan
Allt sem ekki má urða
kemur til okkar
Ingvar hefur unnið í Efnamóttökunni í tólf ár eða frá því að
hann var lítill eins og hann orðar það sjálfur. Ég sá auglýs­
ingu í Morgunblaðinu og sótti um. Efnamóttakan er staðsett
í Gufunesi og sér um móttöku á öllu spilli- og eiturefni. Allt
sem ekki má urða kemur til okkar. Við flokkum allt efni og
komum því í réttan farveg, annað hvort í endurvinnslu eða
í eyðingu bæði innanlands og utan, segir Ingvar. Dæmi um
spilliefni nefnir hann rafgeyma sem séu sendir út til Svíþjóðar,
rafhlöður og lyf sem fólk losar sig við í apótekum. Lyfin eru
sett í sérsmíðuð kör sem Sorpbrennslustöðin á Suðurnesjum
tekur við og brennir. Það þarf að fara í gegnum lyfin áður því
oft leynast hitamælar innan um þau sem innihalda kvikasilfur
og það má alls ekki fara í brennsluofninn, segir hann.
Ingvar er vel kunnugur verkalýðsmálum, hann er trúnaðarmaður á
vinnustaðnum og situr í stjórn Eflingar. Fljótlega eftir að hann byrjaði
gaf hann kost á sér sem trúnaðarmaður og hefur sinnt því starfi síðan.
Það gengur vel og tel ég það góðum stjórnendum að þakka. Samskipt-
in eru góð allt frá framkvæmdastjóra til nýjasta manns á plani, segir
hann. Aðspurður hvernig það hafi komið til að hann sitji í stjórn
Eflingar segir hann að það hafi byrjað á því að hann var tekinn inn í
trúnaðarráð. Fólkinu hljóti að hafa litist ágætlega á hann því hann var
beðinn um að vera í uppstillingarnefnd og í framhaldi af því kynntist
hann fólkinu á skrifstofunni og endaði í stjórn. Þetta var eiginlega
ómeðvitaður tröppugangur, þetta bara gerðist, segir hann. Ingvar segir
stjórnarsetuna hafa kennt sér mikið og þroskað sig. Maður sjái hlutina
í öðru ljósi eftir að hafa setið hinum megin við borðið. Hlutirnir eru
oft ekki eins einfaldir og þeir líta út fyrir að vera í fyrstu, segir hann.
Þegar blaðamaður og ljósmyndari mættu á staðinn var Ingvar að leysa
af á skrifstofunni. Ég er búinn að vera svo lengi hér að ég geng í öll
störf, allt frá móttöku á efni í að útbúa pappíra á skrifstofunni, segir
hann að lokum.
- segir Ingvar Vigur Halldórsson
Vinnuaðstaðan hér er almennt séð góð og ekkert er til sparað
þegar kemur að öryggi og tækjakosti, segir Ingibjörn Ingason.
Hann fékk sjálfur að kynnast mikilvægi þess að vera með
öryggismálin í lagi þegar hann fékk á sig brennisteinssýru.
Hann var að taka upp flösku fulla af efni þegar hún sprakk
framan í hann. Sem betur fer var ég með hlífðargleraugu á
mér og þau björguðu mér. Ég gat hlaupið beint í sturtu en
við erum með sturtur hér á vinnusvæðinu sem við notum í
svona tilfellum. Ekki er vitað hvað olli því að flaskan sprakk
en svona gerist slysin, óvænt og geri ekki boð á undan sér og
því mikilvægt að nota allan hlífðarbúnað. Þegar talið berst
frekar að sturtunni kemur í ljós að hún er líka notuð í öðrum
og skemmtilegri tilgangi. Á síðasta vinnudegi sumarstarfsfólks­
ins er þægilegasta stólnum á kaffistofunni stillt beint undir
sturtuna. Svo er beðið með eftirvæntingu eftir að einhver
hlammi sér í stólinn svo við getum kveikt á sturtunni, segir
hann. Eina sem verði að passa upp á er að fólk sé ekki með
rándýra síma í vasanum sem mega ekki blotna.
Ingibjörn sér um afgreiðslu á efnum sem koma á staðinn, mikið frá
gámastöðinni. Hann er með réttindi á lyftara þar sem honum var
boðið að fara á vinnuvélanámskeið stuttu eftir að hann byrjaði.
Áður en hann byrjaði á vinnustaðnum segist hann lítið hafa pælt í því
hvað væri gert við öll spilli- og eiturefni. Ég vissi ekki hvað það væri
mikið gert til að farga þessum efnum eða koma í endurvinnslu, ég hélt
að þetta færi bara beint í ruslið.
Ingibjörn tekur þátt í skemmtunum sem starfsmannafélagið stendur
fyrir en nýlega ákváðu starfsmenn að greiða í tvö félög. Starfsmenn-
irnir hér eru með eitt félag og Gámaþjónustan annað en hún keypti
Efnamóttökuna fyrir um tveimur árum. Það er ágætt andrúmsloft hér
á vinnustaðnum og gaman þegar við skemmtum okkur saman.
Hlífðargleraugun
björguðu mér
- segir Ingibjörn Ingason