Page 29 - Fréttablað Eflingar - sept 2012

Basic HTML Version

Viðtalið
29
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Vinnustaðaheimsókn
Þekkingarfyrirtæki
í málmiðnaði og
véltækni
Sími 569 2100 • hedinn.is
Héðinshúsið, Gjáhellu 4, Hafnarfirði
Efnamóttakan
Miklu hent ónotuðu
Björn Sigurðsson hafði verið til sjós í þrjátíu og fjögur ár áður
en hann byrjaði í Efnamóttökunni. Aðspurður um kostina við
að vera í landi, segir hann það tvímælalaust vera helgarfríin.
Á sjó vann maður alla daga jafnt en nú fær maður tíma fyrir
sjálfan sig, segir hann.
Vinnan byrjar kl. 7:30 á morgnana og unnið er til kl. 17:00. Björn
vinnur mest með pressu, sér m.a. um að pressa rúllubaggaplast til
að endurvinna og ísskápa. Hann telur vinnuaðstöðuna góða þrátt
fyrir smæð vinnusvæðis. Vonandi fáum við bráðum stærra svæði til
afnota, segir hann.
Björn segir að það hafi komið honum á óvart þegar hann byrjaði
hversu mikið af efni fólk hendir. Það geta verið hlutir sem fólk hefur
aldrei notað og kannski staðið í geymslu í nokkur ár. Spurður að því
hvort að hann megi ekki taka þá með sér heim ef hann sér eitthvað
bitastætt, segir hann svo ekki vera. Það skrifa allir undir yfirlýsingu
þess efnis sem byrja hér að taka ekkert efni út af svæðinu.
Björn Sigurðsson
Björn Sigurðsson, hér til hægri á myndinni, ásamt vinnufélaga sínum Júlíusi Gunnari Sveinssyni