35
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Viðtalið
VIRK–Lífsreynsla
Jón Torfason húsasmiður var í hópi vina
á gönguskíðum í óbyggðum í byrjun
apríl 2009. Ætlunin var að ganga yfir
Kjöl. Vinirnir settust niður til að kasta
mæðinni og fá sér nestisbita, en þegar
átti að halda af stað að nýju fannst Jóni
eins og ætlaði að líða yfir sig. Ég beygði
mig fram á meðan sviminn leið hjá, en
þegar ég rétti úr mér og leit í kringum
mig sá ég að landið var horfið, segir
Jón í viðtali sem birtist á upplýsingavef
VIRK starfsendurhæfingar.
Jón hafði fengið blóðtappa í höfuðið, sem
hafði þau áhrif að hann missti nær alveg
sjón á vinstra auga og sjón skertist veru-
lega á því hægra. „Fólkið sem var með mér
brást rétt við, hringdi í Neyðarlínuna og
fékk samband við lækni. Þegar hann heyrði
lýsinguna á því sem komið hafði fyrir ákvað
hann strax að senda þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar eftir mér. Þremur klukkustundum
síðar var ég kominn á Borgarspítalann, sem
er ótrúlega skammur tími.“
Eftir nokkurra sólarhringa dvöl á sjúkrahús-
inu var Jón farinn að sjá þokkalega frá sér.
Hann átti þó erfitt með lestur, enda var eins
og hluta orða vantaði. Vinstra megin sá hann
ekkert út undan sér og glímir raunar enn við
þann vanda. Skynjunin var brengluð, svo
jafnvel þótt hann sæi þokkalega fram fyrir
sig virtist honum sem landið bylgjaðist undir
fótum sér. Hann tók þó smátt og smátt
framförum og í ágúst 2009 gat hann aftur
sest undir stýri.
Við nákvæma rannsókn á sjúkrahúsinu var
staðfest að Jón hafði fengið blóðtappa, en
jafnframt kom í ljós að hann var með op á
milli hjartagátta; fæðingargalla, sem aldrei
hafði uppgötvast. Hann þurfti því ekki
aðeins að jafna sig eftir blóðtappann, heldur
gangast undir aðgerð á hjarta haustið 2009.
Góður stuðningur ráðgjafa
Þegar áfallið reið yfir var Jón nýbyrjaður í
nýju starfi, en fyrra starf hafði hann misst
í ársbyrjun vegna kreppunnar. Hann leitaði
til stéttarfélags síns, Fagfélagsins, þar sem
hann fékk greidda sjúkradagpeninga. Sigrún
Sigurðardóttir ráðgjafi hafði samband við
mig og lýsti fyrir mér hvaða aðstoð ég ætti
rétt á. Ég hafði ekki hugmynd um það góða
starf áður en hún hafði samband. Hún hefur
stutt vel við bakið á mér, aðstoðaði mig til
dæmis við samskipti við Tryggingastofnun,
útvegaði mér líkamsræktarkort hjá World
Class og sá til þess að ég kæmist á tölvu
námskeið hjá Iðunni, fræðslusetri. Ég hef
alltaf verið mjög virkur og hreyft mig mikið,
gengið, hjólað og farið á fjöll, en Sigrún ýtti
enn frekar við mér.
Jón, sem er kvæntur og þriggja dætra faðir,
segist ekki geta snúið í fyrra starf, í bili að
Ekki stórmál að söðla um
og starfa við eitthvað annað
Jón Torfason
minnsta kosti. Ég er enn kraftlaus og læknir-
inn minn segir að ég verði að sjá hvað setur
í sumar. En ég er að vinna í mínum málum
og er bjartsýnn. Ég veit ekkert hvað tekur
við, en mér finnst ekkert stórmál þótt ég
verði að söðla um og fást við eitthvað nýtt í
framtíðinni. Heilsan skiptir öllu máli, hún er
grunnurinn að öllu sem við gerum.
Engin afskiptasemi
Útivistarmaðurinn Jón gerir sér vonir um að
komast aftur á fjöll í sumar. Ég finn að ég
þarf að fara mér hægar en áður, allt krefst
meiri undirbúnings og ég má ekki ætla mér
um of. Ég ætla að vera áfram í sambandi
við Sigrúnu ráðgjafa. Ég fann strax í fyrsta
viðtali við hana að stuðningur hennar var
mér mikilvægur. Vissulega fannst mér fyrst
eins og þetta væri óþarfa afskiptasemi í
stéttarfélaginu mínu, að boða mig á fund
með ráðgjafa vegna veikindanna, en ég kast-
aði slíkum ranghugmyndum á þessum fyrsta
fundi. Við Sigrún ákveðum næstu skref á
hverjum fundi og ég er mjög sáttur við alla
hennar aðstoð. Það er ekkert einfalt mál að
átta sig á allri skriffinnskunni, sem fylgir
langvarandi veikindum, en Sigrún einfaldaði
alla hluti fyrir mig.
Þessi texti er sóttur í reynslusögur á vef VIRK starfs-
endurhæfingar og birtist hér með góðfúslegu leyfi Jóns
Torfasonar og VIRK starfsendurhæfingar.