Capacent Gallup mun á næst
unni hafa samband við félagsmenn
Eflingar, Hlífar og VSFK en Capa
cent hefur unnið þessar viðhorfs
kannanir fyrir félögin á liðnum
árum og verður svo einnig á þessu
hausti. Í könnununum hafa komið
fram mikilvæg atriði sem hafa verið
gagnleg í uppbyggingu starfsemi
félaganna og við kjarasamningagerð.
Þetta á meðal annars við um breyting
ar á tekjum, afkomu þeirra sem lent
hafa í atvinnuleysi og fjárhagsstöðu
heimilanna. Það er því afar brýnt að
ná til sem flestra af 3000 manna
úrtaki félagsmanna sem fá erindi um
að taka þátt í þessu verkefni. Það
er líka spennandi að lenda í happ
drættispotti sem allir fara sjálfkrafa
í sem taka þátt í könnuninni.
Gallup
•
Á næstu dögum mun Capacent Gallup hafa samband við félagsmenn og vilja félögin eindregið hvetja alla til þess
að taka þátt en því hærra hlutfall sem Gallup nær í könnunum, því marktækari verða þær og betra veganesti að
vinna úr.
•
Úrtakið er tilviljanakennt og nær til 3000 félagsmanna á öllum kjaramálasviðum og er hægt að svara bæði í síma
og einnig á netinu. Það nær einnig til þeirra sem eru án atvinnu til að hægt sé að skoða ýmsa þætti í kjörum
þeirra.
•
Það verður efnt til veglegs happadrættis í tengslum við könnunina og þar verða í boði tveir peningavinningar,
annar upp á 100 þúsund krónur og hinn upp á 50 þúsund krónur auk fimm vinninga með vikudvöl í orlofshúsum
félaganna.
•
Þá er bara að skella sér í gírinn og ákveða að taka vel á móti Gallup með því að gefa sér þann tíma sem þarf til
að svara ef þú lendir í úrtakinu.
Hvetjum félagsmenn til að taka þátt
5
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Viðhorfskönnun Gallup