Mikið framundan
í fræðslustarfinu
Nú er sá árstími sem námskeiðs- og
fræðslustarfsemi Eflingar springur
út. Margt nýtt og skemmtilegt verð
ur í boði í bland við annað sem hefur
verið vinsælt lengi og margir félags
menn hafa nýtt sér síðustu ár, segir
Atli Lýðsson, fræðslustjóri Eflingar.
Hann hefur undanfarnar vikur verið
á fullu að undirbúa ýmis námskeið
og skólahald Eflingar með sam
starfsaðilum félagsins.
Alþjóðlegt samstarf á sviði fræðslumála
verður fyrirferðamikið í haust hjá okkur,
segir Atli. Við fengum styrk úr manna-
skiptaáætlun Evrópusambandsins til að
senda félagsmenn til annara landa til að
kynnast aðstæðum og vinnubrögðum í
öðrum löndum en á Íslandi. Fjölmargir
félagsmenn hafa nýtt sér styrki sem
þessa síðustu ár og óhætt er að fullyrða
að allir hafa þeir komið heim reynslunni
ríkari. Efling fékk ásamt Mími símennt-
un alþjóðlega viðurkenningu fyrir verk-
efnið Yrkju en það snýst um að aðstoða
erlenda félagsmenn við að aðlagast ís-
lensku samfélagi og vinnumarkaði og
læra íslensku. Fulltrúum Eflingar og
Mímis hefur verið boðið að kynna verk-
efnið fyrir öðrum löndum Evrópu á
tveimur alþjóðlegum ráðstefnum. Við
erum mjög stolt af þessu, segir Atli og
gaman að finna að við höfummikið fram
að færa í alþjóðlegu fræðslustarfi fyrir
fullorðna. Efling er einnig þátttakandi í
Evrópuverkefni sem snýst um að þróa
verkfæri sem getur nýst fólki sem ekki
getur nýtt sér ritað og/eða talað mál til
að staðfesta þekkingu sína á ákveðnum
viðfangsefnum. Þarna getur verið um að
ræða hópa eins og erlenda félagsmenn
sem ekki hafa vald á íslensku, lesblinda
ofl.
Viðbótarnám fyrir félagsliða er nú að
fara af stað í fyrsta sinn í samstarfi
Eflingar og Borgarholtsskóla. Þar er um
spennandi samstarf að ræða þar sem
félagsliðum býðst að dýpka þekkingu
sína á ákveðnum viðfangsefnum innan
stéttarinnar. Um er að ræða blöndu af
dreifnámi og staðbundundnu námi hjá
Borgarholtsskóla. Það verður gaman að
fylgjast með þessu duglega fólki, margir
þeirra sem eru nú að byrja í dreifnáminu
hafa hingað til verið innan fullorðins-
fræðslukerfisins og eru nú að stíga sín
fyrstu skref í langan tíma inn í formlega
skólakerfið. Ég er viss um að þau eiga
eftir að spjara sig mjög vel og ég hlakka
til að fylgjast með þeim, segir Atli.
Mikið af styttri námskeiðum eru í boði
á vegum Eflingar í haust. Við erum að
setja aukinn kraft í alls konar styttri
námskeið sem vonandi eiga eftir að
höfða til félagsmanna, segir Atli. Í fyrra
sáum við að vinnustaðir tóku sig saman
og komu á námskeiðin til okkar og skap-
aði það oft á tíðum mjög skemmtilega
stemmingu. Sem dæmi um námskeið
má nefna, lærðu á GPS tækið og græn-
metisútskurð.
Um þessi námskeið og mörg fleiri er
hægt að lesa í miðopnu og fleiri stöðum
í blaðinu auk þess sem allar upplýsingar
um námsframboðið í haust er að finna
á vef Eflingar
www.efling.is
undir flip-
anum fræðslumál.
Eins og sést á miðopnu blaðsins er mikil
fjölbreytni og kraftur í fræðslunni nú í
haust sem endranær og vonandi verða
félagsmenn Eflingar jafn duglegir og
helst ennþá duglegri en þeir hafa verið
undanfarin misseri að nýta sér það sem
í boði er til að læra meira og meira og
meira og meira, segir Atli Lýðsson að
lokum.
- segir Atli Lýðsson
6
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Fræðslumál