Efling Sumarið 2018

30 ORLOFSBLAÐ EFLINGAR-STÉTTARFÉLAGS Veiðikortið er mjög hagkvæmur valkostur sem hentar jafnt veiðimönnum sem og fjöl- skyldufólki. Með Veiðikortið í vasanum er hægt að veiða nær ótakmarkað í 35 veiði- vötnum víðsvegar um landið sem og tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra. Með kortinu fylgir veglegur bæklingur og í honum eru lýsingar á veiðisvæðunum, reglur, kort og myndir. Einnig eru grunnupplýsingar á ensku í bæklingnum. Allur texti í bæklingi má finna á www.veidikortid.is bæði á íslensku og ensku. Veiðikortið kostar til félagsmanna 4.500 kr. og 5 punkta úr félagakerfi. Almennt verð er 7.900 kr. www.veidikortid.is Veiðikortið er stílað á einn einstakling og þurfa korthafar að merkja kortið með kenni- tölu sinni í þar til gerðan reit. Þegar skráning fer fram hjá landeiganda eða veiðiverði ber að sýna Veiðikortið og persónuskilríki eða samkvæmt reglum í bæklingi. Veiðimenn eru hvattir til að ganga vel um veiðisvæðin og skilja ekki eftir sig rusl eða önnur ummerki. Veiðikortið 00000 www.veidikortid.is Kortið gildir fyrir einn fullorðinn og börn yngri en 14 ára í fylgd með korthafa. OR LOF S B LAÐ E F L I NGAR 2 0 1 8 Sjá nánar um vötn og veiðistaði sem í boði eru á www.veidikortid.is

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==