Fréttablað Eflingar 5. tbl. 2018

23 F R É T TA B L AÐ E F L I N G A R - S T É T TA R F É L AG S Viðtal Íslandi og úkraínskra verkamanna í Póllandi. Það sé sami efnahagslegi munurinn og fólk- ið sé meðhöndlað á sambærilegan hátt. Við þurfum að nýta þessa alþjóðlegu reynslu, fræðast um réttindi okkar og fara betur með útlendinga í heimalandinu. Sömu laun fyrir sömu störf Anna segist hafa áttað sig á því, eftir að hafa búið hér í nokkra mánuði, að Ísland er ekki sósíalísk paradís. Félögin hafi ekki verið nógu sterk til að standa gegn ýmsu sem sumir atvinnurekendur leyfa sér að gera og hún segist hafa upplifað ákveðinn tvískinnung í viðhorfum til Íslendinga annars vegar og útlendinga hins vegar. Við getum ekki látið það viðgangast, að fólki séu greidd misjöfn laun ef það vinnur sömu störf, af því að það eru útlendingar. Við þurfum að tala opinskátt um þetta. Aðspurð hvernig hún hafi komist í kynni við Eflingu, segist hún hafa kynnst fólki í tengsl- um við þátttöku sína í grasrótarstarfinu í Andrými og eitt hafi leitt af öðru. Það skipti líka máli, að móðir hennar er vinnuréttarlög- fræðingur hjá pólsku vinnumálastofnuninni, sem fer með ýmis verkefni sem verkalýðs- félögin hafa á sinni könnu á Íslandi. Það má segja að ég hafi fengið áhuga á aðstæðum launafólks með móðurmjólkinni. Ég var ekki virk í pólitísku starfi í Póllandi, heldur stundaði ég rannsóknir á aðstæðum fólks í vinnunni. Ég fylgdist samt vel með starfi ýmissa hópa og það er margt áhugavert í gangi. Vinnan er stærsti þátturinn sem ákvarðar líf okkar og við getum ekki komist hjá því. Framundan eru viðræður um nýjan kjara- samning. Það er vissulega mikilvægt segir Anna Marta, en það sé ekki síður alvarlegt mál, að það sé fullt af fólki sem fái ekki einu sinni greiddan lágmarkstaxta. Fyrir mér skipt- ir það miklu máli að tengja fólkið, láta það vita hvar er hægt að fá upplýsingar og efla trúnaðarmannakerfið. Það verða að vera trún- aðarmenn á öllum vinnustöðum þar sem fleiri en fimm starfa. Sá þurfi að kunna skil á lögun- um, ganga úr skugga um að allir séu með ráðningarsamning og vita hvernig eigi að bregðast við einelti og mismunun. Með þessu móti eigi allir sem komi inn á vinnumarkað- inn, bæði útlendingar og ungir Íslendingar, að hafa jafnan aðgang að grunnupplýsingum um réttindamál. Á hinn bóginn þurfum við að segja hátt og skýrt að það sé til skammar að verkamaður sem skapi tekjur fyrirtækis- ins fái lágmarkslaun. Og að greiða minna en lágmarkslaun, en það sé stundum falið í jafn- aðarkaupi, sé hreinn glæpur. Ég held að það skipti máli í framhaldinu, að í stjórn félagsins núna, er fólk með fjölbreyttari bakgrunn og reynslu en áður. Með því skapist tækifæri til þess að nálgast þann stóra hluta félagsmanna sem er af erlendum uppruna. Ef fólk áttar sig raunverulega á aðstæðum sínum og hvernig þær geta breyst með sterkri samstöðu, þá er fólk tilbúið til að gera ýmis- legt til að ná fram sjálfsögðum kjörum og réttindum. Vill leggja sitt af mörkum Munurinn á mánaðarlaunum á Íslandi og víða annars staðar er mjög mikill. Ef við berum þetta saman við aðstæður í Póllandi, þá getur fólk fengið sex sinnum hærri laun hér. Að vísu er þrisvar sinnum dýrara að búa hér, miðað við að leiga herbergi og lifa spart. Þannig sé hægt að leggja fyrir talsverða peninga á nokkrum mánuðum á Íslandi. Þetta líti öðru- vísi út hjá fjölskyldufólki, börnin þurfi að fara í leikskóla og skóla og taka þátt í starfi eftir skóla. Svo þarf að leigja eða kaupa húsnæði. Þrýstingur vegna þessa geti gert fólk útsett fyrir svindli af hálfu atvinnurekandans. Hún segir að það sé nauðsynlegt að byggja upp samstöðu í félaginu, tengja fólk við það, þannig að það átti sig á því að hjá félaginu geti það fengið ráð og stuðning í samskiptum við atvinnurekendur. Ég hef miklar væntingar um að við getum bætt aðstæður fólks, skref fyrir skref og breytt þannig ástandinu til lengri tíma. Ég vil að við einbeitum okkur að því að byggja upp félagið sjálft og gera það að öflugra baráttutæki. Þótt það sé stutt síðan ný stjórn tók við, finnst Önnu Mörtu hún samt skynja ákveðinn árangur. Hún hafi náð að hitta mjög margt ungt fólk í félaginu og það sé ákveðin vakning í gangi. Það sem mér þótti samt óþægilegast í kosningabar- áttunni, var að hitta fólk frá mið- og austur Evrópu sem sagðist ekki ætla að kjósa, það hefði það betra en áður en það kom til Íslands og vildi ekki rugga bátnum. Þessu viljum við breyta, þýða vinnulöggjöfina þannig að allir séu meðvitaðir um hana. Það er mikilvægt að læra íslensku, en við getum ekki ætlast til þess að fólk sem vinnur tólf tíma á sólarhring, hafi afgangsorku til að sækja tungumálatíma og læra heima. Við verðum að leggja áherslu á að allir upplifi að þeirra sé þörf og þeir séu metnir í samfélaginu. Verkefnin hjá Eflingu eru ærin, segir Anna. Fólkið sem ég vil leggja áherslu á, er nýtt fólk á vinnumarkaði, útlendingar og ungir Íslendingar, fólkið í grunnstörfunum, þjón- ustu- og umönnunarstörfum. Hún segir barátt- una verða langa og harða, en þess virði. Við þurfum öll á þessari byltingu að halda. Anna ætlar að tengja þessi tvö ár í stjórn Eflingar við doktorsnám í háskólanum og því að ná góðum tökum á íslenskunni. This article is in English at www.efling.is Artykuł w języku polskim na www.efling.is

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==