Kylfingur 2018
I KYLFINGUR I 103 Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur var haldinn 7. desember sl. og var þátttaka á fundinum með ágætum. Farið var yfir skýrslu stjórnar og ársreikningur félagsins kynntur. Málefnalegar umræður sköpuðust um nýundirritaða viljayfirlýsingu klúbbsins við Reykjavíkurborg og voru áframhaldandi viðræður samþykktar. Björn Víglundsson var endurkjörinn formaður Golfklúbbs Reykjavíkur og er því að hefja sitt þriðja ár sem formaður félagsins. Björn vill koma á framfæri þökkum til félagsmanna fyrir það traust sem honum er sýnt. Tveir nýir stjórnarmenn voru kosnir til stjórnarsetu, þeir Atli Þór Þorvaldsson og Sigurður H. Hafsteinsson en Guðni Hafsteinsson og Gunnar Már Sigurfinnsson gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Aðrir stjórnarmenn gáfu áfram kost á sér og er stjórn félagsins þannig skipuð: Björn Víglundsson formaður, Ragnar Baldursson varaformaður. Aðrir stjórnarmenn eru Guðný H. Guðmundsdóttir aðalstjórn, Ólafur W. Hand aðalstjórn, Anna Björk Birgisdóttir aðalstjórn, Elín Sveins dóttir aðalstjórn, Margeir Vilhjálmsson aðalstjórn. Vara stjórn skipa: Jón B. Stefánsson, Atli Þór Þorvaldsson og Sigurður H. Hafsteinsson. Hagnaður af starfsárinu var 93 milljónir króna en til samanburðar var hagnaður árið á undan 51,8 milljón króna. Tekjur námu alls 461,8 milljónum króna samanborið við 424,9 milljónir króna á árinu 2016. Golfklúbbur Reykjavíkur annaðist rekstur tveggja golfvalla á árinu ásamt því að sjá um rekstur Bása. Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur: Góður rekstur og stefnu mótun 2018–2025 kynnt Gunnari Má Sigurfinnssyni og Guðna Hafsteinssyni þökkuð vel unnin störf fyrir klúbbinn.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==