Kylfingur 2018
104 I KYLFINGUR I Tillaga stjórnar til árgjalda 2018 var samþykkt af aðalfundi og er gjaldskráin eftirfarandi: Félagsmenn 27-70 ára, kr. 103.000 Félagsmenn 19-26 ára, kr. 51.500 Félagsmenn 71-74 ára, kr. 77.000 Félagsmenn 75 ára og eldri, kr. 77.000 Félagsmenn 75 ára og eldri*, kr. 51.500 *enda hafi félagi verið í GR í a.m.k. 10 ár Ákveðið var að innheimta ekki inntökugjald í klúbbinn fyrir árið 2018. Greiðsluseðlar verða ekki sendir út á starfsárinu 2018 heldur verða eingöngu stofnaðar kröfur í heimabanka. Breytingar voru gerðar á gjaldi kylfinga 6-18 ára árið 2017 og verður skráning þessa aldursflokks áfram með þeim hætti fyrir árið 2018. Frá og með 1. janúar 2018 greiðir þessi aldurshópur æfingagjald hjá klúbbnum og fer skráning og greiðsla fram í gegnum Nóra á slóðinni https://grgolf. felog.is/ - hægt er að velja á milli þrenns konar æfingagjalds: heilsárs-, hálfsárs- og sumaræfingar. Æfingagjöldin og hvað er innifalið í þeim er hægt að sjá nánar um hér. Með þessum hætti hefur Golfklúbbur Reykjavíkur aðlagað sig enn frekar að kerfi frístundarstyrks sveitarfélaganna. Fjölgun hefur orðið á félagatali klúbbsins frá fyrra ári og virðist áframhaldandi aðsókn vera í klúbbinn en nú þegar hefur myndast biðlisti fyrir næsta tímabil. Á árinu var 10% aukning leikinna hringja á völlum GR: Korpa 9 holur – 29.826 hringir miðað við 28.544 á árinu 2016. Korpa 18 holur – 30.187 hringir miðað við 28.738 á árinu 2016 Grafarholt – 32.780 hringir miðað við 27.208 á árinu 2016 Samtals voru leiknir 92.793 hringir á völlum Golfklúbbs Reykjavíkur samanborið við 84.490 leikna hringi á árinu 2016. Aukning var á aðsókn GR-inga á vinavelli en þeir voru einnig fleiri í ár en fyrri ár eða 10 talsins. Heildarfjöldi leik inna hringja á vinavöllum var 7.638 á árinu 2017 saman borið við 6.872 árið áður en þá voru vinavellirnir einum færri. Formaður félagsins fór yfir lykilverkefni stjórnar fyrir árið 2018 og líta þau svona út: • Vinna að innleiðingu stefnu Stefnumótun GR er í fullum gangi. Markmið stjórnar er að hefja innleiðingu á stefnu félagsins. • Uppbygging vallarins í Grafarholti Vinna við framtíð vallarins í Grafarholti er í fullum gangi. Samtal við Reykjavíkurborg er í góðum farvegi og er það markmið stjórnar að ljúka þessum viðræðum á árinu 2017 og marka skýra stefnu um völlinn og endurbætur á honum á starfsárinu. • Golfskálar Endurnýjun skálanna í Grafarholti og Korpu eru á stefnu skrá stjórnar. Marka skal skýra stefnu og hefja verkið á árinu 2017 • Æfingaaðstaða innandyra Mikilvægt er að kylfingar GR hafi aðgang að góðri aðstöðu innandyra. Marka skal skýra stefnu í því á árinu 2017. • Ljúka greiðslu yfirdráttar og hefja uppbyggingu á ný Stefnumótun Golfklúbbs Reykjavíkur 2018-2025: Haustið 2016 ákvað stjórn GR að tímabært væri að hefjast handa við langtíma stefnumótun fyrir klúbbinn. GR er einn af stærri golfklúbbum í Evrópu með golfvelli í hjarta höfuð borgar, sem eru forréttindi sem fáir golfklúbbar búa við. Í ljósi þess þótti stjórninni mikilvægt að vanda til verka og vinna að framtíðaruppbyggingu í góðri sátt og samvinnu við þá sem málið varðar, það er félagana í klúbbnum og Reykja víkurborg. Golfklúbbur Reykjavíkur þakkar Ólafi Arinbirni fundarstjóra fyrir faglega og góða fundarstjórn. Stjórn, framkvæmdarstjóri og starfsfólk klúbbsins þakkar félagsmönnum fyrir gott starfsár. Viðar Þorsteinsson, ásamt Birni Víglundssyni formanni GR, mætti að sjálfsögðu á aðalfundinn eins og hann hefur gert undanfarin 50 ár eða svo. Fundarstjórn var í öruggum höndum Ólafs Arinbjarnar..
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==