Kylfingur 2018
I KYLFINGUR I 107 Lykilmarkmið GR: 1. Heilsársaðstaða til iðkunar golfíþróttarinnar • Markmið GR er að hægt sé að stunda golfíþróttina árið um kring. Inniæfingaaðstaða er forsenda þess að framþróun verði í íþróttinni. • Forgangsverkefni er að byggja upp aðstöðu sem er sambærileg við það besta sem gerist erlendis. 2. Golfvellir í hæsta gæðaflokki • Markmið GR er að bjóða félagsmönnum frábæra golfvelli sem verði í stöðugri framþróun. • Hlúa að völlunum við Korpu og snyrta þá eftir fram kvæmdir liðinna ára. • Markviss uppbygging á Grafarholtsvelli sem byggð verði á skýrri framtíðarsýn. 3. Starf GR miðist við alla aldurshópa og öll getustig. • Áhersla verði á öflugt barna- og unglingastarf. Sköpum afreksmenn í íþróttinni sem verði tryggir félagar GR. • Boðin verði golfkennsla og mótahald fyrir félagsmenn GR. • Öflugt vetrarstarf bjóðist öllum hópum innan GR. • Stefnum að því að GR geti orðið bakhjarl atvinnukylfinga GR. 4. Félagsstarf GR sé það besta sem býðst hjá íslenskum golfklúbbum • Sérstök áhersla verði lögð á samhug og samstöðu GR- inga. Látum félagsmennina finna að þeir séu hluti af sterkri heild. Látum aðstöðu, þjónustu og félagsstarf styðja við þetta markmið. 5. Þjónusta GR sé í fararbroddi • Veitingaaðstaða verði samkeppnishæf í verði og gæð um. • Þjónusta GR sé í fararbroddi. • Aðgengi að völlum verði eins og best er á kosið. 1 Heilsársaðstaða til iðkunar golfíþróttarinnar • Markmið GR er að hægt sé að stunda golfíþróttina árið um kring. Inniæfingaaðstaða er forsenda þess að framþróun verði í íþróttinni. • Forgangsverkefni er að byggja upp aðstöðu sem er sambærileg við það sem best gerist erlendis. Lagt er til að kannaðir verði tveir kostir: • Inniæfingaaðstaða verði byggð upp í Básum svo hægt sé að stunda allar æfingar innandyra með aðstoð nú tíma tækni. • Byggð verði æfingaaðstaða undir núverandi bíla stæðum við klúbbhúsið í Grafarholti og húsin tengd saman. Hugmyndirnar þurfa að uppfylla eftirfarandi grunnskilyrði: • Hið minnsta 30 básar þar sem hægt er að slá í net. Allir með möguleika á að nýta nýjustu tækni við æfingar. • 8-10 básar verði með skjái og búnað til tölvustýrðra æfinga og kennslu. Auðvelt verði að breyta í herma með skjávarpa og forriti. Stærð þessara bása þarf að vera eitthvað stærri (3x4 metrar). • Púttflöt – með sléttu svæði til æfinga. • Vippsvæði –fyrir stutta spilið. • Aðra aðstöðu sem fylgir • Tekjumódel og rekstrarforsendur: • Tekjur frá meðlimum í formi hækkaðra félagsgjalda sem veitir fullan og óheftan aðgang að æfingaaðstöð unni allt árið. Gæti verið valkvætt gjald. • Tekjur af utanfélagsmönnum sem sækja aðstöðuna. • Leiga á aðstöðu, t.d. líkamsrækt, golfverslun, aðstöðu fyrir eldri borgara og fleira. Stefnumótun Golfklúbbs Reykjavíkur 2018-2025
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==