Kylfingur 2018
108 I KYLFINGUR I 2. Golfvellir í hæsta gæðaflokki • Markmið GR er að bjóða félagsmönnum frábæra golfvelli sem eru í stöðugri framþróun. • Hlúa að völlunum við Korpu og snyrta þá eftir fram kvæmdir liðinna ára. • Markviss uppbygging á Grafarholtsvelli sem byggð er á skýrri framtíðarsýn. Lykilverkefni: • Golfvöllurinn í Grafarholti þarfnast endurnýjunar vökvunarkerfis, flata og teiga ásamt sléttun brauta. Mikilvægt er að ræsa fram blaut svæði vallarins. • Vellir GR við Korpu eru nýir og glæsilegir. Þar eru lykilverkefni þau helst að halda áfram uppbyggingu, snyrtingu og aðhlynningu vallanna. • Æfingavöllur GR í Grafarholti (Grafarkot) er í ágætu ásigkomulagi en þar má vinna við einföldun svo sem lokun á glompum og gera völlinn enn aðgengilegri fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni. • Æfingavöllur GR við Korpu (Thorsvöllur) hefur verið á hrakhólum frá upphafi. Hann hefur tekið miklum breytingum í gegnum tíðina og þar eru flatir misjafnar að gæðum. Teikna þarf upp framtíðar völl og vinna markvisst að endurbótum á honum. Þar ætti að vera styttri völlur en er í dag, þægilegur og aðgengilegur fyrir byrjendur í íþróttinni. Áhrif: • Vellir GR verði í hæsta gæðaflokki. • GR nái að halda völlum sínum opnum í a.m.k. 6 mánuði á ári. • Unnið verði markvisst að uppbyggingu eftir samþykktri stefnu fyrir alla velli GR. • Aukin umhirða og uppbyggingminnki viðhaldskostnað vallanna. Kostnaður: Kostnaður við uppbyggingu vallanna fer eftir því hvaða leið verður valin fyrir hvern völl. Stjórn GR stefnir að langtíma samningi við Reykjavíkurborg sem verði undirstaðan að framkvæmdaáætlun klúbbsins næstu árin. 3. Starfið hjá GR miðist við alla aldurshópa og öll getustig. • Sérstök áhersla er lögð á öflugt barna- og unglingastarf þar sem afreksmenn í íþróttinni og kylfingar framtíðarinnar verði tryggir félagar GR. • Stuðlað er að golfkennslu og keppnishaldi fyrir félags menn GR. • Öflugu vetrarstarfi haldið úti fyrir alla hópa innan GR. • Stefnt er að því að GR geti orðið bakhjarl atvinnukylfinga GR. Skipulag íþróttastarfs innan GR. • Mikilvægt er að halda úti öflugu félags og æfingastarfi á meðal félaga GR á grundvelli þarfa þeirra. Taka þarf tillit til aldursskiptingar, afreksstarfs, kappleikja- og mótahalds sem og almennrar golfiðkunar. • Innan klúbbsins eru starfandi nefndir sem sinna þátt um sem byggja á ofangreindu. • Mikilvægt er að samræmi sé á milli þáttanna sem nefndirnar sinna og að efling félags- og íþróttastarfs sé á breiddina. Lykilverkefni: • Byggja nýja inniaðstöðu fyrir félags- og íþróttastarf innan GR.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==