Kylfingur 2018

I KYLFINGUR I 57 Hvenær varðstu félagi í GR? Ég færði mig yfir í GR 2014 eftir að hafa verið í GKG. Ég spila mikið og það freistaði að hafa tvo velli að spila til að fá meiri fjölbreytni, svo bý ég í Árbæn­ um og því þægilegt að vera í GR. Af hverju varð golf fyrir valinu? Ég er kennari og eitt árið var Ragga Sig. í afleysingum við skólann. Hún ákvað að kynna golf fyrir nemendum og mér fannst þetta spennandi. Ég hafði aldrei snert á golfkylfu en keypti mér þá tvær kylfur og pútter. Ragga tók mig svo í nokkra tíma og eftir það var ekki aftur snúið. Skömmu seinna lauk svo vinnu­ félagi minn, Haraldur Þórðarson, golf­ kennaranámi og tók hann mig að sér og kenndi mér mikið. Hver er forgjöfin í dag? Forgjöfin er 14.8 Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Ég hef átt mín góðu og slæmu tímabil eins og flestir en yfir heildina hefur bara gengið ágætlega. Ég hef af og til verið í verðlaunasæti í hinum og þess­ um mótum, unnið bæði pútter og driver og eitthvað fleira. Skemmti­ legast var þó að vinna 2. flokkinn í Meistaramóti GR 2015. Ég byrjaði ekki vel fyrsta daginn, við vorum í einhverju basli og dómararnir mættu og gáfu okkur skemmtilegt blað með mynd af snigli og áminningu um að flýta leik. Við vorum síðasta hollið á vellinum og á 12. holu biðu dómararnir og fylgdu okkur síðustu sex holurnar. Meðspilur­ um mínum fannst óþægilegt að þeir stæðu þarna þrír og fylgdust með hverju höggi en það hljóp kapp í mig og ég spilaði frábært golf, paraði næstu 5 holurnar og fékk fugl á átjándu. Þetta bjargaði skorinu á fyrsta hringnum og endaði ég með að vinna flokkinn. Hefurðu farið holu í höggi? Nei ekki löglega í það minnsta. En fyrsta sumarið mitt var ég ein að spila á Grafarkotsvellinum og fór þá holu í höggi á síðustu brautinni. Við grínið stóðu tveir litlir pjakkar og fögnuðu ákaft og klöppuðu. Ég hélt að þetta væri nú bara eitthvað sem gerðist af og til hjá golfurum. Ég nefndi það svo við Röggu Sig. í næsta tíma að ég væri nú búin að fara mínu fyrstu holu í höggi. Hún hló og sagði mér að það væri nú ekkert sjálfgefið enda er ég enn tíu árum seinna að bíða eftir drauma­ högginu. Eftirminnileg atvik eða skemmtilegar sögur? Ég tek þátt í kvennapúttinu á veturna og í fyrra endaði mótið skemmtilega. Ég var ekki í toppbaráttunni en átti frá­ bæran hring síðasta kvöldið og fékk 12 ása. Fór heim eftir að hafa púttað og komsvoaftur á verðlaunaafhendinguna, skildi pútterinn eftir heima enda datt mér ekki í hug að ég væri nálægt þeim efstu. Þá kom í ljós að ég hafði skotist upp í fyrsta sæti ásamt Steinunni Sæm, og Lovísu Sig. Ég varð því að hendast heim og ná í pútterinn til að fara í þriggja holu umspil við þær. Þegar ég kom til baka beið fullt hús af konum og keppinautar mínir en fékk ég að pútta síðust svo ég næði aðeins að ná mér niður. Fyrsta holan var löng og ég smellti boltanum beint í holu, þær unnu svo sína hvora holuna þannig að ennþá vorum við jafnar eftir 3 holur. Þá var farið í bráðabana en þar missti ég af sigrinum. Þetta var mjög skemmtilegt og mikil stemmning og ný reynsla að pútta undir pressu með helling af áhorfendum. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Það er Ólafía Þórunn. Ég var að koma úr útilegu á Snæfellsnesi og ákvað að spila Garðavöll á heimleiðinni. Hélt að ég væri ein í holli en þegar ég mætti á teig var Ólafía þar með foreldrum sínum. Þetta var árið sem hún hélt út í háskólagolfið en þennan dag var hún að spila æfingahring fyrir mót á Garða­ velli. Ég varð nú smá stressuð fyrst en þau voru yndisleg að spila við og ég reyndi bara að læra af Ólafíu. Ég átti svo fínan hring miðað við mína forgjöf. Besti golfvöllur sem þú hefur leikið? Ég fer til Svíþjóðar á hverju ári og spila þá völl sem heitir Orust GK. Það er flottur völlur sem liggur á eyju útí skerjagarðinum norður af Gautaborg. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Ég er mjög ánægð í GR en þó sakna ég þess mikið að hafa ekki betri æfinga­ aðstöðu yfir veturinn. Einnig myndi ég vilja geta slegið nokkra bolta á Korp­ unni til að hita upp fyrir hringi. Eitthvað að lokum? Í vetur voru golfkennarar GR með opið hús á Korpunni og gat hinn almenni félagsmaður komið og fengið leiðsögn varðandi púttin. Það fannst mér mjög gott framtak og svona aðstoð við hinn almenna kylfing væri gaman að hafa oftar. Hvað með einn vippdag í vor þegar útisvæðið opnar? ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Kristín Hassing kennari:

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==