Kylfingur 2018

58 I KYLFINGUR I Holukeppni GR sló rækilega í gegn á síðasta ári, en þá var haldin holu­ keppni hjá GR fyrir almenna félags­ menn í fyrsta skipti í mörg ár og með nýju sniði. Keppnin heitir Mercedes- Benz bikarinn – holukeppni GR en bílaumboðið Askja er styrktaraðili mótsins. Leikin var forkeppni, sem er venjuleg punktakeppni og tóku rúmlega 80 keppendur þátt. Það voru 64 punkta­ hæstu keppendurnir komust áfram í holukeppnina sem leikin var með út­ sláttarfyrirkomulagi. Besta skor í forkeppninni var 43 punktar en þeir sem náðu 30 punktum komust áfram úr forkeppninni. Að lokinni forkeppni var dregið um hverjir mættust í 64 manna úrslitum. Holukeppnin hófst strax að lokinni forkeppni og höfðu keppendur að jafnaði um tvær vikur til þess að finna sér leiktíma og leikdag í samráði við keppinaut sinn. Keppnin stóð yfir í allt sumar enda léku þátttakendur alls 63 holukeppnisleiki. Leikið var með fullum forgjafarmun sem dreifðist á erfiðustu holurnar samkvæmt forgjafarröð á holum eins og birt er á skorkortum. Fyrir úrslita­ leikinn höfðu 62 holukeppnisleikir farið fram og var forgjafarmunur kepp­ enda að meðaltali 6,4 högg, en meðal­ forgjöf keppenda í upphafi móts var 11,5. Í þessum 62 leikjum voru leik­ menn með sömu leikforgjöf í 8 til­ vikum. Í 27 leikjum sigraði keppandinn með hærri forgjöf og í 27 leikjum sigraði keppandinn með lægri forgjöf. Þetta þýðir væntanlega það að forgjafarkerfið okkar er að virka vel og allir eiga nokkuð jafna möguleika. Í átta manna úrslitum keppninnar léku eftirtaldir kepp­ endur saman. Einar Ágústsson gegn Jóni Kristjáni Ólasyni, Jón Lárus Kjerúlf gegn Ingvari J. Guðmunds­ syni, Kjartan B Guð­ mundsson gegn Óla Viðari Thorstensen og Margrét Richter gegn eiginmanni sínum Sig­ urði Ingvari Hannes­ syni. Margrét sigraði hjónaslaginn og lék gegn Óla Viðari í und­ anúrslitum og hafði betur. Í hinum undanúrslitaleiknum sigraði Jón Kristján í leik gegn Ingvari Guðmunds­ syni. Það voru því Margrét og Jón Kristján sem léku til úrslita um Mercedes-Benz bikarinn. Bæði léku afbragðsgolf í úrslita­ leiknum og skiptust á um forystuna. Það fór svo að Margrét sigraði á 17. holu, var þá tvær holur upp og sigurinn í höfn. Glæsileg verðlaun voru í boði fyrir tvö efstu sætin í holukeppninni. Báðir keppendur fengu afnot af Mercedes- Benz bifreið í viku, keppandinn í öðru sæti fékk auk þess gjafabréf í flug til Evrópu og sigurvegarinn fékk frítt ár­ gjald fyrir næsta ár. Golfklúbbur Reykjavíkur óskar Mar­ gréti til hamingju með sigurinn og þakkar öllum keppendum fyrir þátt­ tökuna í þessari skemmtilegu keppni. Atli Þorvaldsson. Mercedes-Benz bikarinn – holukeppni GR 2018 Að lokinni verðlaunaafhendingu. F.v.: Ómar Örn Friðriksson framkvæmdastjóri GR, sigur­ vegarinn Margrét Richter, Jón Kristján Ólason, annað sætið, og Atli Þór Þorvaldsson móts­ stjóri.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==