Kylfingur 2018
I KYLFINGUR I 65 Golfklúbbur Reykjavíkur varð Íslandsmeistari golfklúbba í flokki eldri kylfinga, 50 ára og eldri, í 1. deild karla 2018. Í 1.deild kvenna var það sveit Golfklúbbsins Keilis sem hreppti titilinn eftir úrslitaleik við okkar konur. Keppni í karlaflokki fór fram í Grindavík, þar sem GR sigraði sveit Keilis í baráttunni um 1. sætið. Sveit GR var skipuð þeim Árna Páli Hanssyni, Guðmundi Arasyni, Sigurði Péturssyni, Guðjóni Grétari Daníelssyni, Ellert Magnasyni, Sigurði Hafsteinssyni, Herði Sigurðssyni og Jóni Hauki Guðlaugssyni. Úrslitaleikurinn var jafn og spennandi þó að lokastaðan (4-1) hafi ekki alveg gefið rétta mynd af gangi mála. Golfklúbbur Öndverðarness endaði í þriðja sætinu eftir sigur gegn GKG og er það besti árangur GÖ frá upphafi í karlaflokki 50 ára og eldri. Konurnar áttust við á Akureyri þar sem GK sigraði í úrslitaleik við GR en GKG endaði í þriðja sæti eftir sigur gegn sveit GA. Þetta er annað árið í röð sem GK verður Íslandsmeistari golfklúbba í flokki 50 ára og eldri kvenna. Lið GR kvenna. F.v.: Ingibjörg Ketilsdóttir, Margrét Geirsdóttir liðsstjóri, Ásta Óskarsdóttir, Guðrún Garðars, Auður Elísabet Jóhannsdóttir, Stein unn Sæmundsdóttir, Ásgerður Sverrisdóttir og Jóhanna Bárðardóttir. Sveit GR varð Íslandsmeistari í karlaflokki 50 ára og eldri Sigursveit GR 2018. Fyrir miðri mynd: Sigurjón Árni Ólafsson liðsstjóri, og Guðmundur Arason. Aftari röð f.v.: Sigurður Hafsteinsson, Hörður Sigurðsson, Guðjón Grétar Daníelsson, Sigurður Pétursson, Árni Páll Hansson, Ellert Magnason og Jón Haukur Guðlaugsson.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==