Kylfingur 2018

66 I KYLFINGUR I Dagana 3.–5. janúar sl. tók Böðvar Bragi Pálsson, einn af okkar efnilegustu kylfingum hjá GR, þátt í Orlando International Amateur for Juniors golfmótinu á Disney Magnolia vellinum í Orlando. Um var að ræða unglingamót sem haldið var í beinu framhaldi af almennu áhugamannamóti, Orlando International Amateur. Keppt var í tveimur flokkum, undir 15 ára og undir 18 ára og stóð Böðvar Bragi uppi sem sigurvegari í yngri flokknum. Báðir flokkar spiluðu af sömu teigum, tæp- lega 6200 metrum við erfiðar aðstæður. Fyrsta daginn var rok og rigning og þurfti að fresta leik. Annan og þriðja daginn þurfti að seinka rástímum vegna frosts, auk þess sem mikill vindur var alla keppnisdagana. Böðvar spilaði hringina á 82, 79 og 74 höggum, bætti sig eftir því sem á leið mótið og vann af öryggi. Völlurinn er krefjandi, en PGA-mótaröðin var spiluð á honum fram til 2012. Til dæmis vann Tiger Woods í tvígang PGA-mót á vellinum. Glæsilegt hjá þér Böðvar Bragi. DISNEY-ÆVINTÝRI HJÁ OKKAR MANNI

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==