Kylfingur 2018
I KYLFINGUR I 71 Perla Sól Sigurbrandsdóttir, sem keppti í flokki 13 ára og yngri. Dagbjartur gerði sér lítið fyrir og sigraði sinn flokk, Böðvar endaði jafn í 4. sæti. Perla stóð sig einnig frábærlega og endaði mótið í öðru sæti. Mótið sem um ræðir er 54 Hole Challenge at Orange County National. Dagbjartur sigraði þetta mót í annað sinn (des. 2016 og 2017). Dagbjartur lék mjög stöðugt golf alla dagana. Fyrsta hringinn lék hann á 70 högg um, eða tveimur höggum undir pari, annan hringinn lék hann á 73 höggum (+1) og þriðja og síðasta hringinn lék hann á 76 höggum, eða fjórum höggum yfir pari. Hann endaði því mótið á samtals þremur höggum yfir pari og endaði í fyrsta sæti eins og áður sagði. Þess má geta að Dagbjartur varð tvöfaldur Íslandsmeistari í fyrra í aldursflokknum 15– 16 ára. Hann sigraði á Íslandsmótinu í holu keppni og á Íslandsmótinu í golfi í flokki 15- 16 ára. Það er ljóst að áhugavert að fylgjast með þessum unglingum í framtíðinni. Yfirþjálfarinn Ingi Rúnar var í fríi en ákvað að taka æfingahring með nemendum sínum. Gaf þeim góð ráð fyrir komandi keppni sem var ómetanlegt fyrir þau. Fuglapútt eins og hjá stóra bróður. Hitað upp fyrir mótið.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==